Þ ann sjötta nóvember ár hvert er ekki amalegt að dvelja við Níagara fossana frægu á landamærum Kanada og Bandaríkjanna. Þá hefst árleg Kanadamegin svokölluð Vetrarljósahátíð, Winter Lights Festival, sem er stærsta og vinsælasta slíka hátíðin í Kanada.
Hápunkturinn er að sjá hina tignarlegu Níagara fossa uppljómaða með þremur milljón ljósum en sú uppljómun markar upphaf þessara hátíðar. Þá er bærinn sjálfur við fossana skreyttur á ýmsa lund en þar er meðal annars stór skemmtigarður, Winter Wonderland, sem fer einnig í ljósabúning svo fátt eitt sé nefnt.
Bæði bærinn sjálfur og fossinn mikilfenglegi uppljómaðir á þann veg fram í janúarbyrjun ár hvert og er sannarlega sjón að sjá í þokkabót við kostulega fossana.
Nánar um hátíðina sjálfa hér.
PS: hafðu bak eyra að bóka gistingu hér að neðan í níföldum heimsmeistara í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards. Það er okkar eina fjáröflunarleið til að halda Fararheill gangandi.




