Úff! Við sem óttuðumst að Icelandair dytti aftur í rándýran einokunarpakkann nú þegar hægt er að telja flug til og frá landinu á fingrum einhents manns…

Flott lág fargjöld Icelandair í boði næstu vikuna eða svo. Skjáskot
Það virðist þó ekki raunin ef marka má nýjasta útspil flugfélagsins.
Fram til 4. desember næstkomandi má gera æði fín kaup á flugmiðum gegnum Icelandair og sumir áfangastaðirnir í færi á verði sem sæmt hefði Wow Air á sínum tíma. Þar að auki er ferðatímabil næstum ár fram í tímann í staðinn fyrir nokkrar vikur eins og raunin hefur verið hjá flugfélaginu undanfarin misseri.
Lof í lófa með það. Það var alveg opnun til að fara í einokunarpakkann aftur og heimta hundrað kall fyrir flug fram og aftur til London eins og reyndin var fyrir ekki svo löngu síðan.
En góðu heilli ætla menn að fara eins nálægt lággjaldamódelinu og hægt er samkvæmt nýjustu auglýsingu þar sem hægt er að finna fargjald aðra leið til Köben niður í 9.900, London allt niður í 6.900 og enginn kvartar yfir 15.900 þúsund krónum aðra leið til Tenerife.
Hafa skal bak eyra að þetta er Icelandair mun dýrara en þeim lággjaldaflugfélögum sem enn fljúga til og frá landinu. Það helgast af því að rellur Icelandair eru almennt svo gamlar að þær þurfa 30-40 prósent meira eldsneyti en nýjar rellur Wizz Air, Norwegian, easyJet og Transavia.
Á móti kemur auðvitað að eins og staðan er fæst flugvélaeldsneyti næstum gefins og kannski er það þess vegna sem tilboð Icelandair eru jafn góð og raun ber vitni nú.
En kannski er þetta bara planið. Í öllu falli príma mál og plús í kladdann.







