Í rétt rúmlega klukkustundar fjarlægð frá Gdansk til austurs má finna borgina Elblag. Þessi hundrað þúsund manna borg hefur sannarlega séð betri tíma en borgin var um aldaskeið ein sú mikilvægasta í landinu. Þar má engu að síður finna athyglisverða hluti enn þann dag í dag.

Gamli bær Elblag er fallegur mjög. Mynd Elblag

Að frátöldum fallegum gömlum borgarhluta Elblag er fátt sem heillar svona við fyrsta stopp í borginni. Stærsti hluti hennar nútímalegur með verslunarmiðstöðvar og ókunnir gætu meira að segja ekið framhjá gamla bænum án þess að hafa hugmynd um það.

Það er þessi gamli borgarhluti sem er mest heillandi hér. Sá ekki stór lengur en fallegur og skoða má þann hluta þokkalega í þaula á einum góðum degi eða svo. Nokkur fjöldi ágætra veitingastaða og bara finnst hér.

Hæst stendur dómkirkja borgarinnar Nikulásarkirkja (Katedra St. Mikolaja). Sú stendur við bakka Elblag skipaskurðsins sem skiptir borginni nokkuð í tvennt og dágóður almenningsgarður  fyrir utan. Kirkjan er ein sú hæsta í Póllandi, 97 metrar á hæðina, og að sumarlagi mögulegt að fara upp í turn hennar þaðan sem útsýn er frábær. Kirkjan hvílir á gömlum grunni því hún var fyrst reist á fjórtándu öld en hefur ítrekað verið sprengd og skemmd síðan. Útlit hennar hefur þó haldið sér að mestu gegnum endurbyggingu.

Bátslyftur Elblag sérdeilis merkilegt fyrirbæri.

Stöku aðrar byggingar í gamla bænum eru skoðunar virði eins og hluti gamals borgarvirkis og klukkuturn einn fallegur.

Einnig í gamla bænum er að finna Fornminja- og sögusafn borgarinnar (Muzeum Archeologiczno Historyczne w Elblągu) en það safn talið eitt það mikilvægasta í Póllandi öllu. Flott stopp til að vitna upp- og niðurgang Elblag gegnum tíðina og margt merkilegra muna og það allt til Víkingaaldar. Virkilega flott stopp og aðgangur ókeypis. Byggingin sjálf að hluta til frá sextándu öld.

Við gamla bæinn stendur fallegur skipaskurður (Kanal Eblaski) og ljúft að taka inn lífið á bökkum hans. En það sem er líklega merkilegast við borgina er einmitt þessi skurður þó ekki liggi það augljóst fyrir. Það helgast af því að tækni sú er notuð er til að ferja báta og ferjur upp og niður skurðinn er verkfræðilegt undur enn þann dag í dag og það þótt aðferðinni hafi verið beitt síðan. Notaðar eru vatnsmyllur til að draga báta bæði upp og niður á tilteknum stöðum í skurðinum og á köflum á teinum yfir grasbletti. Stórmerkilegt alveg og fyrirbærið á þjóðminjaskrá Póllands. Best er að taka bátstúr til að upplifa og sjá þetta með eigin augum en þeir túrar taka þrjár til fjórar stundir að jafnaði.