M eð fullri virðingu fyrir því fólki sem telur að heimsmeistaratitill í crossfit eða þátttaka í Iron Man séu stórmerkilegir hlutur þá eru þær greinar kannski ekki svo frámunalega erfiðar miðað við margt það annað sem mannskepnan keppir í sér til dægrastyttingar.

Þær eiga það flestar sameiginlegt að flokkast með einum eða öðrum hætti undir jaðaríþróttir. Í þeim eru alvarleg slys og jafnvel dauði við hvert skref sem er öllu meira en lagt er að veði í velflestum öðrum íþróttagreinum.

Hér eru fimm af einhverjum grimmilegustu þrekraunum sem stundaðar eru í dag. Allar greinarnar eru öllum opnar.

♥  Iditarod hundasleðakeppninAlaska, Bandaríkjunum > Árið 1925 braust úr barnaveiki í smáþorpinu Nome í Alaska en dánartíðni þeirra sem ekki fá lyf við þeirri veiki er 50 prósent. Hópur manna frá Anchorage fregnaði þetta og hélt þegar í stað áleiðis til Nome með nauðsynleg lyf fyrir íbúana. Leiðin er tæpir 1900 kílómetrar yfir fjöll, skóga og ár og allt á kafi í snjó og ís. Þá þarf ekkert að ræða lágt hitastigið eða þá staðreynd að dagsbirta er afskaplega takmörkuð í mars þegar keppnin fer fram. Til Alaska er komist með Icelandair í beinu flugi.

♥  Il CioccoToskana, Ítalíu > Til eru þeir sem vita ekki að mótorhjól sem flokkast sem enduro-hjól standa fyrir enska orðið endurance eða úthald enda þykir fátt erfiðara fyrir sál og líkama en að djöflast um á slíkum hjólum. Einn góðan veðurdag datt einhverjum í hug að fá úr því skorið hverjir væru frábærir á enduro og hverjir væru stórkostlegir. Það er ástæðan fyrir Il Ciocco, Hliði helvítis, sem fram fer árlega í fjöllum hins friðsæla Toskana héraðs. Erfitt? Árið 2010 náðu tveir af 103 keppendum að klára. Wow Air, Vueling og Icelandair fljúga milli Íslands og Ítalíu yfir sumartímann.

♥  Heimsmeistarakeppnin í ísklifriýmsir staðir > Hreint ekki hver sem er þorir að klífa snarbratta ísveggi aðeins vopnaður góðum klifurskóm og ísstautum. Þó keppa menn í þessari grein árlega og er þar ekki um neina aukvisa að ræða. Þeir sem til þekkja segja ótrúlega orku og fimi þurfa til að vera með.

♥  Heimsmeistarakeppnin í ískurliýmsir staðir > Ritstjórn Fararheill þekkir ekki neina íslenska þýðingu á World Ice Crushing Championship og tók upp á sitt einsdæmi að þýða það sem ískurl. Eiður Guðnason er beðinn fyrirfram afsökunar. Þó auðvelt virðist að skauta eins hratt og hægt er niður bratta brekku er það flóknara en flestir halda. Keppendur ná á köflum yfir hundrað kílómetra hraða og næsta augnabliki missa þeir fótanna og þá ræður guð og lukkan hvað um þá verður.

♥  Badwater ultramaraþonið – Kaliforníu, Bandaríkjunum > Aðeins kolbrjáluðu fólki dytti í hug að fara að skokka í eyðimörk enda Berbar og Bedúínar ekki sérstaklega þekktir sem langhlauparar. En ár hvert í Dauðadalnum í Kaliforníu koma saman hundruðir keppenda og ætla sér ekki að skokka eitt né neitt heldur hlaupa últramaraþon eða 218 kílómetra sem allra hraðast. Ekki bara er hitinn um 50 stig að meðaltali heldur er hæðarmunurinn á upphafstað og endastöð einir 2,6 kílómetrar.Til Kaliforníu er ekki komist í beinu flugi héðan en kannski auðveldast með Icelandair til Denver og þaðan áfram með innlendu flugfélagi.