H versu oft hefur það gerst að áhuginn að skoða allar fínu myndirnar úr exótíska fríinu þegar heim er komið er öllu minni en þú sást fyrir þér þegar þær voru teknar?

Stundum verða þunnar og þreyttar myndir ferskar og flottar frá nýju sjónarhorni. Mynd Prachanart Viriyaraks

Stundum verða þunnar og þreyttar myndir ferskar og flottar frá nýju sjónarhorni. Mynd Prachanart Viriyaraks

Fátt er skemmtilegra í góðra vina hópi en skoða ljós- eða kvikmyndir úr fjörlegu eða framandlegu fríi. Eða það telja margir allavega þangað til komið er heim og myndirnar reynast vera heldur þreyttar og leiðinlegar. Hvers vegna skyldi það vera?

Hér eru sex ráð til þeirra sem glíma eilíft við leiðinlegar myndir úr fríinu. Tekið skal fram að aðeins er um ráð frá ritstjórn að ræða og sú hefur á engan hátt neina menntun í fræðunum.

Leiktu þér með myndavélina >

Einu sinni voru myndavélar fokdýrar svo ekki sé minnst á filmurnar sem kostuðu sitt sem og framköllunin. Kannski er það þess vegna sem margir sem eldri eru virðast afskaplega passasamir á vélarnar sínar og svo mjög reyndar að þeir taka þær ekki fram nema endum og sinnum. Svo er ekki lengur í flestum tilvikum. Myndavélar í flestum farsímum eru fantagóðar og stafrænar myndavélar enn betri. Hafðu slíkan grip alltaf í hendi þér og smelltu af við minnsta tilefni. Myndir af fólki sem ekki veit að verið er að mynda eru alltaf skemmtilegri en uppstilltar pósur.

Hafðu fyrir skotinu >

Það er hálf kjánalegt að ferðast hálfan heiminn til Taj Mahal eða slíkra staða og smella svo bara hefðbundinni mynd af pleisinu. Tonn er af slíkum myndum á netinu sem allir eru búnir að skoða. Hafðu fyrir því á stórkostlegum stöðum að mæla út og meta hvar þú tekur eins sérstaka mynd af viðkomandi manneskju, hlut eða byggingu og mögulegt er. Leggstu niður og taktu mynd þaðan eða gerðu þér far um að mynda annað sjónarhorn en allir aðrir finna. Slíkar myndir er vert að skoða þegar heim er komið því það sést að þú hafðir fyrir því.

Út með flassið >

Alltof margir hafa ávallt stillt á flass eða stilla vélar sínar þannig að vélin sjálf ákvarðar hvort flass þarf eður ei. Slökktu alveg og vittu til hvort flestar myndirnar þínar fá ekki á sig fallegri blæ og dýpri og fallegri liti. Flassið vitaskuld þarft í niðamyrkri en jafnvel í dimmum skotum er hægt að taka frábærar myndir svo lengi sem vélin er stöðug. Endilega að nota tímastillinn og koma vélinni fyrir á góðum stað.

Fólk á myndirnar >

Það ættu að vera lög sem banna myndir nema á þeim séu lifandi verur. Mynd af tómum Laugavegi er hundleiðinleg og segir engum neitt. Mynd af Laugavegi fullum af fólki er hins vegar skemmtileg. Svo einfalt er það.

Finndu sérfræðinginn >

Í velflestum skipulögðum ferðum er gaur eða gaurína sem er með áberandi mikið meira af ljósmyndadóti en aðrir og stúderar ljós og birtu í þaula. Viljir þú fá mynd af þér eða fjölskyldunni og ekki verða fyrir vonbrigðum skaltu biðja þá manneskju um að taka myndir af þér og þínum en ekki bara biðja næsta plebba.

Fleiri en færri >

Stafrænar vélar og margir farsímar geta geymt hrikalegt magn mynda í fínni upplausn. Nýttu það og taktu alls staðar fleiri myndir en færri. Þú ert jú yfirleitt aðeins einu sinni á hverjum stað fyrir sig í þessu lífi og hundfúlt ef eina Taj Mahal myndin þín er úr fókus.