S íðustu ár og áratugi hafa verið ströng viðurlög við því að klífa píramídana frægu á Giza í Eyptalandi. Bæði há fjársekt, fangelsi og ef um útlendinga að ræða brottvísun frá landinu. En það hefur ekki stoppað alla.

Hátt fall og stutt í næsta Subway. Kaíróborg er komin ægilega nálægt þeim gersemum sem píramídarnir eru. Mynd Vadim Makhorov
Mikla athygli vakti þegar þrír Rússar klifu hæsta píramídann, Khufu eða Keops, að kvöldlagi 2013 og eyddu þar drykklangri stund við ljósmyndun. Komust þeir upp með allt saman enda lék landið á reiðiskjálfi á þessum tíma og fólk með hugann við annað en öryggisgæslu.
Aðeins örfáar myndir þeirra hafa verið gerðar opinberar en þær segja mikla sögu. Bæði eru myndirnar flottar og sýna vel hæðina og brattann.
En það sem kannski kemur spænskt fyrir sjónir þeim er ekki hafa komið hingað í eigin persónu er hversu nálægt Kaíróborg er komin. Aðeins nokkur hundruð metrar eru frá þessum miklu mannvirkjum og að næsta Subway stað í borginni. Og með nánd kemur mengun og meiri mannfjöldi en ella.

Glæsileg yfirsýn en miður hvað byggð færist sífellt nær. Mynd Vadim Makhorov




