Þ að er allt með böggum Hildar hér um slóðir. Þorramaturinn að heiman fékk ekki grænt ljós hjá tollurunum og við alveg miður okkar.

Aldrei mínus að fá vel elduð svið á klakanum. En þau fást reyndar líka í fátækrahverfum Suður-Afríku á öllum tímum ársins.

Svo sagði Íslendingur einn sem býr ásamt familíunni á Tenerife í fyrravetur en margur landinn þar varð af þorramatnum vegna þess að spænskir tollarar hentu úldnum matnum lóðbeint á haugana þegar upp komst.

Íslendingar elska sinn þorramat og mörg okkar monta sig af miður geðfelldum matnum við erlenda ferðamenn. Ekki hvað síst yfir sviðum og sviðasultu. Eða hvar annars staðar þykir slíkt herramannsmatur?

Ja, í ljós kemur að sviðahausar og nokkurs konar sviðasulta plús sviðasúpa í þokkabót er barasta daglegt brauð á borðum fátækra í Suður-Afríku!

Þú last þetta rétt. Svið, sviðasulta og sviðasultusúpa er meðal þess sem bláfátækt fólk í fátækrahverfum Höfðaborgar (Cape Town) er með í matinn reglulega yfir árið. Það þarf engan þorramánuð til.

Allt eðlilegt við þetta. Svið, sviðasulta og súrir pungar er í raun ekkert fyrir nútíma Íslendinga til að fyllast stolti yfir. Þetta var einhver ódýrasti matur sem fékkst þegar 90% landsmanna bjuggu í torfkofum og þaðan af verra fyrir tvö til þrjú hundruð árum síðan. Súrmaturinn oft það eina sem bjargaði fátækum frá sultardauða.

Alas, þó Íslandið góða og Íslendingar séu í betri málum í dag er ekki hið sama sagt um frumbyggja Suður Afríku. Þeim enn haldið niðri í skítnum og milljónir búa við aðstæður sem eru ekkert minna en viðbjóðslegar. Enginn hiti, ekkert vatn, engar skólplagnir, engin klósett, engin heilbrigðisþjónusta og reyndar alls engin þjónusta punktur.

Þess vegna bjargar fólk sér með því að svíða og sjóða sviðakjamma, sviðasultu og sviðasúpu enn þann dag í dag í fátækrahverfum Höfðaborgar og víðar. Það enginn herramannsmatur heldur lífsnauðsyn.

Endilega takið fátækratúr ef þið finnið ykkur í Höfðaborg og hafið fengið nóg af skútusiglingum, vínsmökkun og safarí hjá fyrirtækjum sem nánast hundrað prósent eru í eigu hvíta aðalsins. Við hér mælum með ferð í Lange-fátækrahverfið. Þar finnurðu sviðin góðu og hér meira að segja heimatilbúinn bjór. En þú verður að deila öllu með brosmildum og vinsamlegum heimamönnum.