M yndir segja þúsund orð og stundum gott betur en það. Eins og þessar myndir frá hinu fallega landi Víetnam sanna sé einhver að efast.

Víetnam hefur lengi vel lítið verið í vitund vesturlandabúa nema fyrir hrottalegt stríð Bandaríkjanna á hendur þessu litla landi fyrir tæpri hálfri öld síðan. Stríði sem hið máttugu stórveldi vann ekki eða beinlínis tapaði eftir því hvernig á það er litið.

Í öllu falli var þó eyðilegging landsins gríðarleg enda ýmis konar vafasömum vopnum beitt gegn því fátæka fólki sem þar bjó og býr enn. En Víetnam er þó enn stórkostlega fallegt eins og þessar myndir bera með sér.

  • Drekaflóinn

Víetnam

Ófáir staðir á jarðkringlunni eru eins heillandi og Ha Long flóinn, Drekaflói, með sínar þúsundir kletta og eyja og fjölskrúðugs dýralífs bæði ofan sjávar og neðan

  • Grafhýsi Ho Chi Minh

Víetnam

Ho Chi Minh er í hugum heimamanna landsins faðir og sá sem stóð í hárinu á Bandaríkjamönnum þegar ráðist var á landið. Grafhýsi hans er tilþrifamikið þar sem það stendur í höfuðborginni Hanoi

  • Flotmarkaðurinn á Ljóðafljóti

Víetnam

Stærsti flotmarkaður Víetnam finnst við borgina Can Tho sem stendur við Mekong ánna en nafn borgarinnar vísar til Ljóðafljótsins sem þessi hluti árinnar er kallaður

  • Hænuþorpið

Víetnam

Í fjallaþorpinu Lang Con Ca töluvert utan alfararleiða stendur eins og skratti úr sauðalegg risastór steinsteypt hæna. Ekki er um auglýsingu að ræða heldur styttunni ætlað að hræða burt villidýr sem ágirnast hænur þorpsbúa

  • Cuc Phuong þjóðgarðurinn

Cuc Phuong þjóðgarðurinn er stórkostlegur. Það er hér sem finnst einn stærsti hitabeltisfrumskógur í allri Asíu

Cuc Phuong þjóðgarðurinn er stórkostlegur. Það er hér sem finnst einn stærsti hitabeltisfrumskógur í allri Asíu

  • Borgin My Son

Víetnam á sína eigin Angkor Wat; leifar mikillar borgar sem eitt sinn var þungamiðja landsins. My Son heitir þessi staður en hér ríkti valdamikill keisari landinu um sex alda skeið frá 4. til 12. aldar

  • Sa Pa fjallahéraðið

Norður af Hanoi í fjöllunum mitt á milli Lagos og Kína er að finna Sa Pa sem af mörgum er talið fallegasta hérað landsins. Hér búa fjölmargir þjóðflokkar sem rækta hvern skika í fjallóttu landinu. Mynd Peter Chamdra Alam

  • Fílahlaupið í Dak Lak

Ár hvert á vorin fer fram í Dak Lak héraðinu mikið og fjölmennt fílahlaup sem dregur að innfædda og útfædda hvaðanæva að

Ár hvert á vorin fer fram í Dak Lak héraðinu mikið og fjölmennt fílahlaup sem dregur að innfædda og útfædda hvaðanæva að

  • Thien Mu í borginni Hue

Tilbeiðslustaðurinn Thien Mu í hinni frægu borg Hue er velþekktur meðal landsmanna

Tilbeiðslustaðurinn Thien Mu í hinni frægu borg Hue er velþekktur meðal landsmanna

  • Marmarafjöllin í Da Nang

Fimm sérstakir klettadrangar skammt frá borginni Da Nang eru tilbeiðslustaðir fyrir Víetnama. Hver drangur hefur trúarlega þýðingu og í þeim öllum má finna göng og skúta um allar trissur

Fimm sérstakir klettadrangar skammt frá borginni Da Nang eru tilbeiðslustaðir fyrir Víetnama. Hver drangur hefur trúarlega þýðingu og í þeim öllum má finna göng og skúta um allar trissur