Dagatalið

Sahara Douz hátíðin

  06/12/2010september 30th, 2014No Comments

Það sem eitt sinn var lítil uppskeru- og kvonfangshátíð í litlum bæ að nafni Douz er nú ein vinsælasta hátíðin í Marokkó. Hefur hún vissulega breyst úr því að vera aðeins uppskeruhátíð og hjónabandsmarkaður þar sem Bedúínar úr eyðimörkinni komu með kvonfang til giftingar að þeirra sið en er forvitnileg og sérstök.

Nú er ekki lengur verið að gefa fólk saman heldur meiri áhersla á skemmtan og hefur tekist að halda nokkuð í venjur og siði en bæta við húllumhæi sem allir hafa gaman af.

Þar á meðal má nefna kamelreiðar, hundakapphlaup og það sem kalla má heræfingar á hestum en í öllu er keppt og haft gaman af.

Douz var áður fyrr leiðin úr eyðimörk Sahara og inn í Marokkó og öfugt en nú er bærinn tiltölulega stór og töluvert gert út á ferðamenn.

Heimasíða hátíðarinnar hér.