Yfirvinnubann flugmanna Icelandair er aftur hafið eftir að flugmenn höfnuðu þeim kjarasamningi sem samþykktur var af hálfu samninganefndar þeirra eftir langt þref um síðustu mánaðarmót.
Eru allir þeir sem eiga bókað far með flugfélaginu Icelandair beðnir um að fylgjast extra vel með meðan bannið er í gildi því lítið má upp á koma til að fella þurfi niður flugferðir.
Það gerðist einum tuttugu sinnum þegar flugmenn fóru í fyrra yfirvinnubann sitt á þessu ári í júní síðastliðnum með tilheyrandi vandkvæðum fyrir ferðalanga.
Enn er fundað hjá ríkissáttasemjara þegar þetta er skrifað og því ekki með öllu fráleitt að nýir samningar líti dagsins ljós fyrr en síðar.
Talsmaður Icelandair á ekki von á því að truflanir verði á flugi í dag samkvæmt fréttum fjölmiðla en engar fregnir eru á vef flugfélagsins um hugsanleg óþægindi næstu daga.
Yfirvinnubannið gildir aðeins um flugmenn Icelandair enda tilheyra flugmenn Iceland Express ekki Félagi íslenskra atvinnuflugmanna.
Vefur Icelandair hér.
Vefur textavarpsins hér.
Vefur Leifsstöðvar hér.






