V elflest fólk yfir herbergishita í greindarvísitölu veit af tilvist hinnar mögnuðu borgar Inkanna, Machu Picchu, í fjöllum Perú. Færri vita að annars staðar í landinu eru mannvirki sem ýmsir fornleifafræðingar kalla Machu Picchu norðursins.

Fjölmörg mikilfengleg mannvirki hafa staðið í Marcahuamachucos á sínum tíma en uppgröftur á sér enn þar stað og enn fjölmargt sem liggur undir jörðu. Mynd David Baggins
Marcahuamachuco er hið þjála nafn þess staðar en þar hafa fundist leifar mikilla mannvirkja sem byggð voru 400 árum eftir Kristsburð eða töluvert áður en Inkar náðu yfirráðum í Perú. Þykir sannað að þar hafi verið líf í tuskum fram til ársins 800 þegar Inkarnir loks létu að sér kveða í landinu.
Þykir ljóst að þessi ákveðni staður hafi verið höfuðstaður til langs tíma en Marcahuamachuco stendur í 3200 metra hæð í mynni þriggja fjalla í La Libertad héraði Perú. Er um stórt svæði að ræða þar sem ýmsar tilþrifamiklar byggingar hafa staðið og hafa rústir nokkurra þeirra verið grafnar upp í dag.
Telja menn einnig víst að hér hafi spáprestar ráðið ríkjum á sínum tíma og hingað hafi fólk komið frá svæðum sem nú tilheyra bæði Perú og Ekvador til að leita ráða og setjast hér að.
Þykir ljóst að Marcahuamachuco verði vinsæll ferðamannastaður í framtíðinni og hafa yfirvöld þegar búið til vegi að svæðinu sem stendur nokkuð afskekkt og lengi hefur verið vandamál að komast að. Svo er ekki lengur.




