Fyrir utan að planta sér með nesti og nýja skó við rauða dregilinn viku fyrir Óskarsverðlaunaafhendingu ár hvert er sennilega aldrei auðveldara fyrir okkur meðalmennin að sjá stórstjörnur hvíta tjaldsins með berum augum en á árlegri kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi.
Ekki aðeins það heldur geta menn þar barið augum það nýjasta nýtt í kvikmyndagerð en hafa verður í huga að Cannes býður aðra en milljónamæringa ekkert sérstaklega velkomna og fátt þar í verslunum á eðlilegum verðum. Þá er og ýmis konar etiquette viðhaft víða í borginni.
Kvikmyndahátíðin hefst þann 13.maí og stendur til 24.maí. Á heimasíðu hátíðarinnar má sjá hvaða kvikmyndir eru í boði þetta árið.



