F rægasta torg Písa-borgar á Ítalíu heitir Kraftaverkatorgið, Piazza dei Miracoli, en fáir þekkja það heiti. Öllu fleiri þekkja skakka turninn í sömu borg en sú misheppnaða smíð stendur einmitt við fyrrnefnt Kraftaverkatorg.

Turninn frægi sem hallar og hallar og hallar en fellur samt ekki. Það er ákveðið kraftaverk útaf fyrir sig 🙂 Mynd Paolo Margari

Engan skal undra að Kraftaverkatorg finnist í blóðkaþólskri Ítalíu og Písa ekki eina þéttbýlið sem státar sig af torgi kraftaverka. Engum staðfestum sögum fer þó af sérstökum kraftaverkum á þeim torgum.

Dómkirkjan, og turninn. Ægifallegar byggingar báðar tvær. Mynd Rodrigo Soldon

Nema kannski sé litið til hins fræga skakka turns Písa…

Torre di Pisa er heimsþekkt fyrirbæri fyrir tvennt. Annars vegar að einmana turninn atarna er skrambi fallegur og hins vegar að hann hefur frá byggingu hallað sífellt meira og svo mjög að kraftaverk má telja að hann hafi ekki þegar hrunið til jarðar með brauki og bramli. Þetta er, með öðrum orðum, frægasta hallandi bygging heims. Sem auðvitað er áskrift inn á heimsminjaskrá SÞ.

Hugmyndin að turninum frábær út af fyrir sig. Í stað þess að byggja risaturna upp úr fagurri dómkirkju Písa eins og alls staðar var gert á þeim tíma, til þess eins að koma fyrir risastórum bjöllum svo heimafólk gæti nú vitað hvað tímanum liði og hvenær væri messað yfir lýðnum, ákváðu forsjálir menn að breyta aðeins til. Klukkuturninn yrði stakur einn og sér við hlið dómkirkjunnar. Menn sem brutust út úr boxinu ef svo má að orði komast á þeim tíma. Plús í kladdann fyrir það og algjört lágmark reyndar því Písa var sérstakt borgríki á þessum tíma og allt kapp lagt á að gera hlutina flottari og merkilegri en skítleg nágrannaborgríkin.

Skírnarskálinn, dómkirkjan og skakki turninn. Allar byggingarnar standa við Kraftaverkatorgið. Mynd Roger Moffat

Það hins vegar mínus í kladdann að vart var bygging turnsins hafin árið 1173 fyrr en hann tók að halla. Sá fór að halla strax þegar þriðja hæð turnsins var byggð sökum þess hve gljúpur jarðvegur var þar undir og ekki síður sökum þess að grunnur turnsins var einungis þrír metrar í þvermál.

Gáfumenni þess tíma gerðu það sem gáfulegt var og stöðvuðu byggingu turnsins umsvifalaust. Þó ekki væri nema í eitt hundrað ár. Það virtist duga til. Turninn hætti að hallast og allir fóru fljótlega að hallast að því að undirlagið hefði jafnað sig.

Eftir að helstu arkitektar landsins höfðu lagt haus í bleyti í heila öld var smíðinni loks framhaldið og þá með þeirri „stórgóðu” hugmynd að til að vega upp mót hallanum skyldu allar fimm hæðirnar fyrir ofan þá þriðju byggðar með hallann í huga. Það er að segja að veggir fimm efstu hæðanna fyrir ofan þriðju hæð eru 5 – 15 sentimetrum hærri þeim megin sem hallinn er.

Hugmyndin kannski ágæt ef ljóst þótti að jarðvegurinn gæfi sig ekki meira en orðið var en vitaskuld gaf turninn enn meira eftir þegar mun meiri þyngd var komin hallamegin.

Bygging skakka turnsins er því farsi út í eitt; eða kraftaverk eftir því hvernig á er litið. Jafnvel gott betur því árið 1991 óskuðu ítölsk stjórnvöld eftir alþjóðlegri aðstoð við að koma í veg fyrir að turninn félli en höfnuðu jafnframt öllum tillögum um að rétta turninn af í eitt skipti fyrir öll. Turninn yrði að halla því það er stærsta aðdráttarafl ferðafólks til Písa.

Skakka turninn er hægt að klífa ef fólk nennir að þramma upp tæplega þrjú hundruð tröppur. Turninn er tómur ef frá er talinn stiginn sjálfur og engin er þar bjallan til að minna fólk á messu. En útsýnið er alveg príma 🙂