Í Kína má fólk leita til eilífðarnóns eða hér um bil til að finna staf eða punkt um hina vofeiflegu atburði er áttu sér stað á Tiananmen torgi fyrir um 25 árum síðan þegar kínversk stjórnvöld bældu niður friðsamleg mótmæli á mjög svo hrottafenginn hátt. Í Hong Kong þarf þó aðeins að leita í nokkrar mínútur.

Friðsömum mótmælum sem snérust upp í martröð þann 4. júní 1989 gerð skil í Hong Kong. Mynd dw

Friðsömum mótmælum sem snérust upp í martröð þann 4. júní 1989 gerð skil í Hong Kong. Mynd dw

Þó langt sé síðan Bretar hurfu frá Hong Kong og eftirlétu Kínverjum stjórn þess hluta lands síns er enn töluverður munur á því sem þar fer fram og því sem gerist í gömlu Kína. Mun meira frelsi ríkir í Hong Kong sem er ástæða þess að eina safn veraldar þar sem atviksins á Torgi hins himneska friðar er minnst er staðsett þar.

Safnið er sannarlega lítið en fyrir þá með áhuga á sögunni vel þess virði að heimsækja. Þar gefur að líta fágætar myndir af vettvangi meðan varðveisla slíkra mynda í Kína getur varðað löngum fangelsisdómi. Það heitir 4.júní safnið og finnst í einni byggingu City University of Hong Kong.

Sjálfsagt að droppa við ef þú finnur þig í borginni einn góðan veðurdag.