Milljarðamæringarnir í stjórn og „sérfræðingarnir” á kontórnum hjá Icelandair gráta krókódílatárum þessi dægrin. Í ljós hefur komið að liðið tímdi aldrei að púkka í áhættuteymi og er því grátandi utan í ríkisstjórn Íslands daginn út og daginn inn um peninga og sporslur.

Velkomin um borð 🙂 Svona verða móttökurnar í flugi líklega næstu misserin. Mynd AirAsia

Það eins og það er. Þjóð sem gleymdi Hruninu, ástæðum þess og afleiðingum á fimm mínútum sléttum á ekkert betra skilið en dusilmenni við stjórn stórfyrirtækja.  Það er nefninlega ekki svo merkilegt að reka fyrirtæki á góðæristímum. Góði dátinn Svejk myndi ráða við slíkt og kannski líka Björn Ingi Hrafnsson.

Dusilmenni sem hafa áratugum saman talað fyrir lægri sköttum og minni ríkisafskiptum en þegar á hólm er komið er sama lið mætt fyrir utan stjórnarráðið fyrir allar aldir og vill peningagjafir. Hvað myndi Jesú Kristur segja um slíkt fólk?

Myndin hér til hliðar er af áhafnarmeðlimum Air Asia sem flýgur vítt og breitt um Suðaustur-Asíu og hafa nú þegar hafið takmarkað flug á tilteknum stöðum innanlands í Tælandi, Víetnam og Malasíu. Búningarnir eins og lóðbeint úr tónlistarmyndbandi frá 1987. Spennandi að panta kjúkling og bjór hjá slíku gengi og finna dásemdarstraumana streyma.

Búningar áhafnarinnar þó hjóm eitt miðað við þær reglur sem Air Asia hefur sett sér og verið sett af hálfu ríkisstjórna Tælands, Malasíu og Víetnam og það fyrir innanlandsflug. Reglurnar alls 26 talsins en kíkjum á þær helstu:

  • Enginn kemst um borð nema bera sína eigin andlitsgrímu fyrir vitum. Sú gríma verður að vera fyrir vitum alls staðar á flugvöllum og alla flugferðina líka. Grímulausir einstaklingar fara ekki um borð.

  •  Takmarkanir á handfarangri. Til að koma í veg fyrir raðir og nánd fólks þegar komið er um borð hefur flugfélagið takmarkað handfarangur í fimm kíló.

  • Taka þarf hitastig farþega við innritun í flugið, við innritunarborð við landgang OG áður en lent er á áfangastað. Fylla þarf út eyðublöð bæði á brottfararstað og á lendingarstað með öllum upplýsingum um heilsufar síðustu vikur.

  • Allir áhafnarmeðlimir verða í hlífðarbúningum alla flugferðina

  • Hver vél er þrifin duglega með sóttvörn milli alla ferða og á kvöldin fer rellan í gerilsneyðingu þegar allt er sótthreinsað í tvær stundir að lágmarki.

  • Hver vél aldrei fyllri en 50 prósent og því setið í öðru hverju sæti.

  • Fjórtán daga sóttkví mun bíða allra farþega sem fljúga til og frá með Air Asia.

Skemmtileg lesning ekki satt? Og er þó aðeins drepið niður á nokkrum atriðum.

Gallinn sá að þó Air Asia sé með þeim fyrstu til að fljúga reglulega eftir að kórónavírusinn olli usla á borð við það sem Adolf Hitler dreymdi um á heimsvísu er flugfélagið líklega ekki hið eina sem þarf að MINNSTA KOSTI slíkar ráðstafanir til að fljúga farþegum að ráði.

Ferðalög næstu misserin verða ömurleg í alla staði 🙁