„Mig langar sérstaklega að beina athygli ykkar að þessu stóra flugfélagi sem að við byggjum svo mikið á. Hvað er að gerast þar? Ef þið reiknið fram í tímann, hvenær verður eigið fé þar komið á hættulegt stig. Það má ekki veðja þjóðarbúinu á það að þeir fái bætur frá Boeing. Við vitum ekki hvenær þær koma, hvað þær verða miklar og það er eitthvað sem þið verðið að huga að.”

Forstjóri Icelandair hefur verið háttsettur hjá fyrirtækinu frá árinu 2008. Og ekkert lært. Mynd Icelandair

Sjö mánuðir síðan Gylfi Zoëga, nefnarmaður í peningastefnunefnd, hafði uppi varnaðarorð um stöðu flugfélagsins Icelandair og fékk fyrir vikið kúk á skít ofan frá hinum og þessum og þar á meðal forstjóra flugfélagsins. Forstjórinn gaf í skyn að fræðimaðurinn hefði bara ekki kynnt sér málið því ef hann hefði gert það væri morgunljóst að staða Icelandair væri mjög traust og flugfélagið stæði sterkt gagnvart öllum áföllum.

Eðlilegra hefði verið af Gylfa Zoëga, nefndarmanni í peningastefnunefnd, að leita upplýsinga hjá Icelandair Group í stað þess að láta „ógætileg“ ummæli falla, að mati forstjórans Boga Nils Bogasonar.

Hmmm!

Sjö mánuðum síðar reynist prófessorinn hafa haft rétt fyrir sér og forstjórinn í tómu rugli. Icelandair þóttist eiga tugmilljarða króna til að takast á við áföll en nú tveimur mánuðum eftir að kórónavírusinn setti strik í reikning er forstjórinn að segja upp öllu starfsfólki og er á hnjánum eftir aðstoð skattborgara viku eftir viku í forsætisráðuneytinu.

Enginn veit framtíðina og þó..

Nostradamus var ekkert merkilegri en söngvarinn í Nýdönsk en Daníel Ágúst, okkur vitandi, ekki tjáð sig neitt um framtíð Icelandair þrátt fyrir stór orð.

En það eru þó að falla niður stöku brauðmolar hér og þar í skóginum sem gefa vísbendingar um framtíð flugs. Þar á meðal:

⊕ Ítalía verður lokuð erlendum ferðamönnum fram til áramóta að minnsta kosti.

⊕ Spánn verður að öllum líkindum lokaður erlendum ferðamönnum fram að áramótum.

Flugfélag sem getur ekki sýnt hagnað í mesta góðæri Íslandssögunnar er ekki að sýna hagnað þegar allt er í tómu tjóni.

⊕ Þjóðverjar hafa slúttað stærstu hátíð landsins, Októberfest, þó sú hátíð fari fram næsta haust.

⊕ Bandaríkjamenn vilja opna allt fyrir öllum í fyrradag en hver vill fara þangað þegar landið hefur aðeins skimað 1,5 prósent þjóðarinnar, tugmilljónir atvinnulausra fá ekki krónu eða dollar og skotvopn fleiri en mannfjöldi. Enginn að fara þangað næstu árin ef vit er í kolli og ekkert tryggingafélag að dekka ferðina.

⊕ Lággjaldflugfélagið Norwegian gerir ekki ráð fyrir að fljúga mikið Á ÞESSU ÁRI.

Lífeyrissjóðir tapað feitt á bréfum í Icelandair

Þó enginn einasti fjölmiðlamaður í landinu spái neitt í afkomu lífeyrissjóða landsmanna í yfirstandandi krísu er líkega óhætt að slá föstu að hver og einn einasti lífeyrissjóður hefur tapað tug- og jafnvel hundruðum milljóna króna síðan kóróna gerði vart við sig. Þetta sömu lífeyrissjóðir og þurfa að sýna fram á 3,5 prósenta hagnað til að standa undir skuldbindingum lögum samkvæmt.

Margir þessara sjóða eiga því miður stóra hluti í Icelandair og hangið á þeim hlutum gegnum þykkt og þunnt frá Hruninu 2008. . Því miður sökum þess að afkoma Icelandair á þessum langbesta tíma íslenskrar ferðaþjónustu hefur verið sorglegri en tónlist Hildar Guðnadóttur í Djóker.

Út með Boga og milljarðamæringana í stjórninni

Enginn af stjórnarmönnum Icelandair höfðu vit á flugrekstri þegar þeir fengu sætin sín. Stjórnarseta í flugfélaginu er bara til sýnis og monts eða dettur einhverjum í hug að forstjóri Toyota viti eitthvað um flugrekstur annað en að heimta stærri fríar samlokur og breiðari sæti á Saga Class?

Að sama skapi virðist sitjandi stjóri, Bogi Nils Bogason, vera þunnildi frá helvíti fyrir utan almennt frost í sálinni (sjá mynd.) Megamenntaður gaurinn kom ferskur inn hjá Icelandair árið 2008 og lenti með nefið lóðbeint í Hruninu sem næstum setti Icelandair lóðbeint á hausinn (ef ekki hefði komið til ríkisábyrgð.)

Bogi Nils hefur því haft TÓLF ÁR til að koma í veg fyrir að Icelandair fái niðurgang í brók við fyrsta hanagal þegar eitthvað á bjátar. Vissulega ekki verið stjóri allan þann tíma en verið í forsvari og sem slíkur sannarlega haft áhrif á allar ákvarðanir þann tíma.

Ekki aðeins tókst Boga litla og Icelandair EKKI að sýna mikinn hagnað þrátt fyrir algjöran metfjölda ferðafólks til landsins. Fyrirtækið það illa rekið að litla Wow Air flutti fleiri farþega og var stærra flugfélag en Icelandair skömmu áður en græðgi Skúla Mogensen fór með það til fjandans.

Þrátt fyrir árin tólf virðist Bogi hafa fengið brúnt í brók strax í lok febrúar eða mánuði eftir að kórónafaraldurinn fór virkilega að gera vart við sig. Gaurinn mættur á fund ráðherra á fimm mínútum sléttum þrátt fyrir montið um að fyrirtækið væri sterkt og gæti tekið áföllum án þess að blikka auga.

Vænlegt að fjárfesta í Icelandair?

Ofantalið ætti að segja hugsandi fólki að stjórnendur Icelandair komast aldrei í bækur fyrir framúrskarandi rekstur. En enginn hefur heimtað afsögn þeirra gegn því að ríkið eða lífeyrissjóðir fjárfesti enn meira en þegar er orðið.

Afsögn þeirra allra er lágmark. Icelandair nær sér ekki á strik með vitleysinga við stjórn. Aðeins þá er kannski hægt að ræða að lífeyrissjóðir landsmanna auki enn við stóra hluti sína í flugfélaginu. Á móti þá ábyrgist ríkið hluti lífeyrissjóðanna í flugfélaginu og bæði ríkið og sjóðirnir fá meirihlutavald í stjórn. Einkaaðilar á borð við svindlarann Pálma Haraldsson, sem á stóran hlut í flugfélaginu, verða þynntir út og í tilfelli Pálma, í stíl við hárið á honum.

Einkaaðilum er einfaldlega ekki hægt að treysta til að reka eina flugfélag Íslendinga miðað við reynslu síðustu ára. Ef lífeyrissjóðirnir láta sig hafa það án þess að gera kröfur er óhætt að fara að draga yfirmenn lífeyrissjóðanna fyrir dómstóla.