
Í Moskvu eru líka súperfínir jólamarkaðir eins og annars staðar í Evrópu. Mynd Axel F
Það gleymist stundum þeim er búa yfir meiri ævintýragirni en því fólki sem dvelst þrjátíu ár í röð á sama hótelinu og helst í sama herbergi eins og velþekktur verslunareigandi á Íslandi hefur hlutina, að orðið er sallaauðvelt að kynna sér stað og stund á hinum ólíklegustu stöðum heims gegnum samfélagsmiðla.
Þannig á ekkert að koma á óvart að ekkert sé mikið að gerast á torgum Kölnar í Þýskalandi. Né heldur eiga verkföll jarðlestarstarfsmanna í Lundúnum að koma neinum á óvart. Og er einhver jólastemmning í Moskvu í Rússlandi?
Jebbsídeisí og halelújah.
Óhrædd við að nota nífaldan heimsmeistara í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards hér að neðan. Það er eina tekjuleið okkur hér 😉




