Skip to main content

A lmennt leggja Íslendingar ekki leið sína alla leið til Hollywood í Los Angeles í Kaliforníu þegar skreppa skal í frí en ef þú finnur þig á þeim slóðunum er sitthvað betra en annað að vitna eigin augum.

Kvikmyndum og sjónvarpsþáttum að þakka að í Hollywood er gnótt frægra staða. Mynd hmg

Kvikmyndum og sjónvarpsþáttum að þakka að í Hollywood er gnótt frægra staða. Mynd hmg

Hollywood er eðlilega mekka kvikmyndaáhugamanna og sjálfsagt og skemmtilegt að skjóta undir sig betri fætinum einu sinni á lífsleiðinni eða svo og kíkja til borgarinnar. Hollywood er hverfi í hlíðum Los Angeles og þangað er ekkert mál að komast með borgarsamgöngutækjum úr miðborginni.

Hér eru fimm staðir sem ritstjórn Fararheill mælir eindregið með í Hollywood.

♥  Hollywood skiltið – Þetta margfræga skilti gæti mögulega verið þekktasta skilti heims þar sem það stendur hátt í hlíðum Hollywood hæða. Þetta 32 metra háa hvíta skilti er einkenni hverfisins og reyndar Los Angeles allrar fyrir stóran hluta mannkyns. Hægt er að aka upp Hollywood hæð og komast að skiltinu aftanfrá með sæmilegu móti en sjálft skiltið er varið af girðingu og öryggismyndavélum eins og kananum sæmir. Séu göngugarpar í ferðinni er hægt að rölta upp að því á 40 mínútum.

♥  Kínverska leikhúsið – Formlegt heiti er Grauman´s Chinese Theater en það kallast kínverska leikhúsið í daglegu tali. Staðsett á Hollywood breiðgötu, Hollywood Boulevard, og þar má finna handa- og fótaafsteypur af öllum frægustu stjörnum bæjarins steypt í götuna fyrir utan.

♥  Hollywood Skálin – Hollywood Bowl er áhorfendasvæði undir beru lofti en svæðið er í laginu eins og skál og þaðan stemmir nafnið. Þar eru reglulega haldnir tónleikar og uppistand hvers konar og er sérstök og skemmtileg stemmning á svæðinu. Allir sem einhvern tíma hafa verið nöfn hafa komið hér fram. Fínt að kíkja hingað á sama tíma og Hollywood skiltið er skoðað enda í sömu hæðum við North Highland Avenue.

♥  Mulholland vegur – Mulholland Drive er einn af þekktari vegum heims enda ófáar kvikmyndirnar verið teknar þar. Vegurinn er á toppi Hollywood hæða og hlykkjast ótt og títt í allar áttir. Hinu megin er svo San Fernando dalurinn.

♥  Capitol turninn – Ein frægasta byggingin í Hollywood er húsnæði Capitol hljómplötuútgáfunnar sem var stór á sínum tíma. Turninn sést víða að og var fyrsta skrifstofubygging heims sem var hringlaga.