Beint flug er héðan til hinnar ágætu Helsinki, höfuðborgar Finnlands. En kannski ráð að hinkra með ferð þangað ef fólk er hrætt við hunda.

Okkur hér finnst það töluvert yndislegra að láta fallegan hund þefa húð og hár en að troða löngum eyrnapinna lengst upp í heila 🙂 Mynd Vantaa
Finnar eru snillingar út í eitt.
Þá erum við ekki bara að meina Konuhlaupið sem er ein skemmtilegasta uppákoma seinni tíma. Né heldur sú iðja að bera sig í sánaböðum og berja skrokkinn með trjágreinum klukkustundum saman. Þaðan af síður að leyfa ungu heimilislausu fólki að dvelja á elliheimilum. Svo ekkert sé minnst á bráðsniðugar ungar stúlkur í helstu ráðherraembættum.
Neibbs. Fleira kemur til.
Til dæmis sú staðreynd að í stað rándýrra lækna og hjúkrunarfólks að taka covid-prufur af komufarþegum á Vantaa-flugvelli í Helsinki eru heimamenn að brúka hunda!
Þú last þetta rétt. Hundar sjá að stórum hluta um að finna sýkta einstaklinga á þeim ágæta flugvelli þessa dagana. Þeir töluvert ódýrari kostur en langmenntaðir læknar og hjúkrunarfólk og heimta bara smá mat og vatn svona af og til. Mögulega mikið betri kostur líka 🙂
Reyndin virðist sú, og ætti ekki að koma á óvart, að hundar með sitt þefskyn sem er þúsundfalt öflugra en nebbi mannfólksins, geta þefað uppi það fólk sem er sýkt af Covid-19 ekkert síður en þeir geta þefað uppi fólk með krabbamein.
Það hafa flugmálayfirvöld á stærsta flugvelli Finnlands fært sér í nyt síðasta mánuð eða svo og með aldeilis frábærum árangri. Hundarnir samkvæmt fréttum jafnvel áreiðanlegri en þessi ömurlegu mannlegu próf þar sem löngum eyrnapinna er stungið bókstaflega upp í heila á fólki.
Á móti kemur að nokkur fjöldi fólks er hrætt við hunda. Þeir þurfa ekki að örvænta. Það eru líka læknar og hjúkrunarfólk á vappinu í Vantaa svona ef ljúfir hundarnir eru ekki að gera sig.







