E inhver merkasti staður heims stendur spottkorn frá smábænum Elis á suðvesturströnd Grikklands en afar fáir láta sig hafa ferðalag á þær slóðirnar enda yfirleitt langt að fara frá vinsælum strandstöðum. Það eru mistök.

Töluvert af kostulegum eldgömlum minjum eru enn uppistandandi í Olympia. Mynd Greek Tourism

Ólympía, Olympia, er samheiti yfir fornar rústir íþróttaleiksvæðis sem stóð, og stendur að merkilega stórum hluta enn, í útjaðri smábæjarins Elis á suðvesturströnd Grikklands.

Olympia er auðvitað næsti bær við nútímalega Ólympíuleika því það er frá þessum tiltölulega óþekkta gríska stað sem hugmyndin að Ólympíuleikum nútímans kom.

Ástæðan sú að í Olympia, sem var heilagur staður til forna, fór fram keppni í þrótti og fimi í heil tólf hundruð ár frá átta hundruð fyrir Krist til ársins fjögur hundruð eftir Krist. Komu aðilar víða að til að etja kappi á leikunum í denn alveg eins og þeir gera enn þann dag í dag.

Héraðið Olympia var á þeim tíma helgað guðinum Zeus úr goðafræðinni og íþróttaleikarnir voru hugsaðir sem leið til að fá mismunandi þjóðarbrot héðan og þaðan til að sameinast undir merkjum Grikklands en á þeim tíma náðu áhrif Grikkja töluvert víðar en nú er.

Nú á tímum má enn finna leifar af rúmlega 70 byggingum sem þá voru byggðar og sumar hverjar merkilega heillegar. Þar á meðal allnokkrar rústir mustera til að votta guðinum Zeus aðdáun.

Fararheill eyddi hér tíma síðla árs 2019. Rústirnar einar og sér ekkert merkilegri en rústir annarra staða sem fægir voru í denn. Það aðeins þegar fólk veit hvers vegna þessar rústir eru hér að hægt er að gera sér í hugarlund hversu merkilegt svæðið er.

PS: Ef einhverra hluta vegna rústirnar hér þykja óspennandi eru ekki nema 20 kílómetrar í ljúfa strandlengjuna. Merkilegt nokk eru strandsvæðin hér ekki mikið að gera sig fyrir ferðafólk þó hér séu sömu ljúfu strendurnar við sama ljúfa Adríahaf og finnast í Króatíu eða Ítalíu þar sem erlendir ferðamenn geta vart þverfótað fyrir öðrum ferðamönnum. Við mælum sérstaklega með bænum Kyparissia en þar er fyrirtaks strönd og súperfínir grískir veitingastaðir.

Góða ferð!