Þ að verður seint tekið af Kínverjum að þeir eru sniðugir. Ríki þeirra orðið stórveldi í heiminum að mestu leyti á því að selja vesturlandabúum ódýrt drasl meðan þeir raka saman gróðanum og nota slatta til þess eins að stela og heimfæra allt hið besta sem fyrirfinnst á Vesturlöndum yfir til föðurlandsins.

Þröngt um manninn í kínverska Dauðahafinu en ekki er ljóst hvers vegna allir eru með kúta í vatni þar sem enginn sekkur.

Þröngt um manninn í kínverska Dauðahafinu en ekki er ljóst hvers vegna allir eru með kúta í vatni þar sem enginn sekkur.

Þess vegna ætti engum að koma á óvart að Kína á sitt eigið Dauðahaf. Það kallast saltvatn mikið í Yuncheng héraði en þar hafa stórhuga menn opnað stærstu innisundlaug heims sem kallast einmitt Kínverska Dauðahafið.

Nafnið er tilkomið vegna þess að saltstig í vatninu og sundlauginni er mun hærra en gengur og gerist og jafnast á við það sem finnst í hinu raunverulega Dauðahafi á landamærum Jórdaníu og Ísrael. Það þýðir að fólk getur flotið á vatninu í mestu makindum án allra hjálpartækja. Í kjölfarið er hægt að njóta alls kyns meðferða, eða spa og heilsulinda eins og það kallast á tískumáli, og njóta lífsins upp að vissu marki.

Að vissu marki vegna þess að tugþúsundir sækja kínverska Dauðahafið heim dag hvern sér til ánægju og er vatnið og laugin troðin dag eftir dag eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.