Þ eir sem til þekkja segja vart til betra leið til að kynnast Bandaríkjunum eða Kanada en með því að leigja húsbíl og þeysa um vegi hvors lands frjáls og óháð.
Best af öllu er sennilega að fjölskyldan og reyndar stórfjölskyldan getur sparað mikla peninga á slíku ferðalagi í stað þess að dvelja á hóteli eða í leiguvillu enda hægt að fá fínan húsbíl vestanhafs fyrir allt niður í fimm þúsund krónur á dag.
Í slíkum bílum er svefnpláss fyrir fjóra til fimm að minnsta kosti og til bílar sem taka átta manns með ágætu móti og með velflestum nauðsynjum sem slíkur hópur þarf.
Þá er sannarlega ástæða til að skoða þau fyrirtæki sem bjóða svokallaða one-way díla. Bílaleigurnar þurfa reglulega að ferja bifreiðir sínar á milli borga og staða og afar góður afsláttur er veittur fólki sem tekur slíkt að sér.
Fararheill er kunnugt um fjölskyldu sem flaug til New York 2019, leigði miðstærð af húsbíl á svokölluðum one-way kjörum, ók honum alla leið til Kissimmee í Flórída og notaði til þess um 20 daga í rólegheitum þar sem víða var áð og það skoðað sem áhugavert var á leiðinni. Verðmiðinn fyrir húsbílaleiguna heilar 106 þúsund krónur plús eldsneyti og tryggingar.

Mjög víða vestanhafs eru húsbílar velkomnir í flesta bæi og borgir.
Það verður að flokkast sem allra ódýrasta frí sem fjögurra manna fjölskylda getur tekið en vitaskuld sofið í bílnum og því engin þörf á að greiða fyrir gistingu. Aðeins þurfti að greiða vegatoll á stöku leiðum, eldsneyti og mat auðvitað plús kostnað við að leggja á þartilgerðum húsbílastöðum sem nóg er af alls staðar.
Fjölmargir aðilar leigja út slíka húsbíla til lengri eða skemmri tíma og tilboð margra geta verið vægast sagt frábær. Allra best eru fyrrnefnd one-way tilboð en þar gefa bílaleigurnar mikla afslætti fyrir að aka ákveðna leið á ákveðnum tíma og skila húsbílnum á ákveðinn stað.
Slíkt er reyndar aðeins mögulegt með litlum fyrirvara og hentar því ekki öllum. En sem dæmi um hversu fínan díl má fá má nefna að þegar þetta er skrifað er hægt að leigja miðstærð af húsbíl í Seattle og taka heilan mánuð til að koma honum til Denver en Icelandair flýgur sem kunnugt er til beggja borga. Afsláttur af venjulegu verði í þessu tilfelli: 85 prósent. Viðkomandi greiðir því aðeins 15 prósent hefðbundinnar leigu en mánaðaðarleiga með 3000 kílómetrum inniföldum er kringum 380 þúsund íslenskar krónur. Þannig er hægt að rúnta um æði skemmtilegan hluta Bandaríkjanna í heilan mánuð fyrir heilar 40 þúsund krónur plús eldsneyti.
Það er tilboð sem bragð er að.
Nokkrar viðurkenndar húsbílaleigur vestanhafs eru:





