H vassviðri, haglél og niðdimmur dagur. Hugurinn leitar á fjarlægar strendur þar sem veðrið er skárra, sjórinn hlýrri og sólin sjáanleg. Nema veskið er tómt, kreditkortareikningurinn fallinn á gjalddaga og vegabréfið útrunnið.

Góðar bækur bera mann auðveldlega hálfa leið út. Mynd Moyan Brenn
Það jafnast ekkert á við raunveruleg ferðalög á eigin skinni en við ofangreindar aðstæður er varla til neitt betra til að friða útrásartilfinninguna tímabundið en stórkostlegar ferðabækur. Þær bækur einmitt sem bera þig hálfa leið í huganum og jafnvel lengra en það.
Hér eru nokkrar bækur sem ýttu undir ævintýragirni ritstjórnar Fararheill.is og við mælum 100 prósent með:
♥ In Patagonia /Bruce Chatwin – Stórkostlega skrifuð bók um þvæling Chatwins um Patagóníu í Argentínu.
♥ Journey without Maps / Graham Greene – Fyndin og merkileg bók um ferðalag Greene til Líberíu árið 1935.
♥ Chasing the Monsoon / Alexander Frater – Frater kann að gera úrhelli í Indlandi einkar skemmtilegt.
♥ Great Railway Bazaar / Paul Theroux – Hverjum dytti í hug að lestarferðir gætu verið svona fróðlegar.
♥ Journey to Portugal / Jose Saramago – Einstakur rithöfundur beinir sjónum að eigin landi og með sínum afar sérstaka stíl að venju. Ýmislegt hér í landi sem fer of lítið fyrir.
♥ In Europe / Geert Mak – Ótrúlega fersk sýn á ferðir og þvæling um ýmsa staði álfunnar. Virkilega vel skrifuð og sett í skemmtilegt samhengi við atburði fyrri tíma.
♥ Running in the Family / Michael Ondaatje – Höfundur English Patient heldur á fornar slóðir á Sri Lanka/Ceylon og setur ýmislegt þar í samhengi með ljóðrænum og fallegum hætti.
♥ Midnight in Sicily / Peter Robb – Hvers vegna á mafían þessa eyju með húð og hári? Robb kafar djúpt í sál eyjaskeggja og varpar ljósi á fjölmargt sem við fyrstu sýn kemur undarlega fyrir sjónir aðkomufólks.
♥ Istanbul: Memories of a City – Orhan Pamuk – Nóbelsverðlaunahafinn fer með okkur í ferð um það sem hann kallar rústir Ottóman heimsveldisins. Rústir sem Pamuk glæðir lífi og litum af snilld.
♥ Soul Mountain / Gao Xingijan – Lífið í strjálbýlli þorpum og stöðum í Kína séð með augum þessa meistara sem grípur til skáldagyðjunnar af og til á bakpokaferðalagi sínu um landið.
♥ Travels with Herodotus / Ryszard Kapuscinski – Firnavel skrifuð bók um þvæling þessa pólska meistara um Asíu og Afríku og allt setur hann í samhengi við fornar sögur svo úr verður meistaraverk.




