Tólf tilfelli Hermannaveiki hafa uppgötvast í ferðamönnum sem dvalið hafa á eynni Balí síðustu vikur og tíðindin slæm enda dregur veikin fólk til dauða ef ekki er ráð í tíma tekið.
Veikin lýsir sér með hósta og hita og hættir mörgum við að tengja það flensu og gera því ekkert sérstakt í málinu. Það aftur á móti getur haft alvarlegar afleiðingar en fimm prósent þeirra sem veikina fá látast vegna hennar ár hvert.
Hermannaveiki smitast ekki manna millum heldur með lofti eða vatni.
Balí er vinsæll ferðamannastaður Íslendinga og ber að æða umsvifalaust til læknis ef einkenni gera vart við sig eftir að heim er komið.






