L íklegt má telja að tiltölulega fáir Íslendingar þekki til staða á borð við Glenfinnan í Skotlandi, Sale í Marokkó, Bagheria á Sikiley eða Wicklow á Írlandi. Að sama skapi má næstum fullyrða að velflestir hafi séð viðkomandi staði enda fjórir af vinsælli stöðum til kvikmyndatöku í bíómyndum.
Það er ástæða fyrir að sumir staðir á jarðkringlunni eru vinsælli en aðrir hvað kvikmyndatökur varðar. Oft eru þeir ódýrari eftirlíkingar af þekktari stöðum þar sem myndir gerast en ekki svarar kostnaði að mynda þar. Oftar hafa þó staðirnir eitthvað heillandi við sig sem gerir þá eftirsóknarverða til töku.
Ritstjórn Fararheill.is tók saman nokkra dásamlega staði sem þekktir eru úr frægum kvikmyndum og þykja kostulegir.
-
Glenfinnan, Lochaber, Skotland
Skosku hálöndin eru heillandi ein og sér en jafnvel enn meira þegar söguhetjur og ofurmenni hvers konar koma við sögu. Háir og djúpir dalir, leyndardómsfull vötn og lækir, gömul hús og kastalar og síðast en ekki síst er svæðið fámennt og stjörnur hvíta tjaldsins geta dúllað sér þar í nokkra mánuði án truflana frá æstum aðdáendum.
Meðal kvikmynda sem teknar hafa verið að fullu eða hluta í Glenfinnan eru: Harry Potter & the Chamber of Secrets, Harry Potter & the Prisoner of Azkaban, Harry Potter & the Philosopher´s Stone, Highlander, From Russia with Love og The World is not Enough.
-
Almería, Almería, Spánn
Þeir sem ferðast hafa um suðurströnd Spánar vita mætavel hversu þær lendur eru berangurslegar og hvergi ber meira á því en í Almeríu héraði við samnefnda borg. Hér er umhverfið strangt til tekið eyðimörk þó þarna vaxi reyndar stöku kaktusar að frátöldum þeim ávöxtum sem hér eru ræktaðir á þúsundum ferkílómetra svæði.
Þessa staðreynd í viðbót við hversu ódýr Spánn var á sínum tíma gripu kvikmyndagerðarmenn í Hollywood á lofti og héldu hingað þó styttra væri til margra annarra hentugra staða. Það var í Almería sem myndir á borð við Lawrence of Arabia, Fistful of Dollars, For a Few Dollars More, Cleopatra, Patton, Indiana Jones and the Last Crusade og The Good, the Bad & the Ugly voru teknar í heild eða hluta.
-
Matmâta, Matmâta, Túnis
Þetta svæði er merkilegt fyrir margra hluta sakir. Ekki síst að úr fjarlægð virðist fátt að sjá nema ryk sem stöku vinhviður þyrla upp annars lagið. Er það ekki fyrr en komið er nánast alveg að sem skyndilega sjást merki um híbýli og fólk og líf. Ástæðan sú að sá ættflokkur Bedúína sem hér býr byggir sér hús inn í kalksteinum sem undir eyðimörkinni eru. Er þá gerð stór hola og út frá henni byggja sér allmargar fjölskyldur híbýli inni í klettunum. Afar sniðugt enda skýlir þetta frá sólinni og alltaf er sama hitastig í hellahúsunum.
Tvær frægar Hollywood bíómyndir hafa að hluta verið teknar hér. Fyrsta Indiana Jones myndin Raiders of the Lost Ark og ein frægasta mynd allra tíma Star Wars. Í þeirri seinni voru öll eyðimerkuratriðin tekin upp hér og þar má sjá híbýli á borð við þau sem enn þann dag í dag standa á þessum stað.

Í sólþurrkuðum eyðimerkum Túnis hafa menn lengi búið sér til fyrirtaks fylgsni í klettum og það jafnvel niðurgröfum.
-
Nice, Nice, Frakkland
Margir eru á því að fegursti hluti Frakklands sé Miðjarðarhafshluti landsins og þar er Nice héraðið fremst í flokki í hugum margra. Vissulega er svæðið auðvelt fyrir kvikmyndagerðarfólk enda bæði hér fjöll og strendur og borgir og bæir af öllum mögulegum stærðum og gerðum. Þá er veðurfar hér eðli málsins samkvæmt yfirleitt í betri kantinum og rigning og leiðindi fremur sjaldgæf.
Í borginni Nice og samnefndu héraði í kring hafa verið teknar að hluta ýmsar bíómyndir og þar helstar Love Actually, Ronin, Day of the Jackal, Bourne Identity, Magical Mystery Tour, Son of the Pink Panther, Mon Oncle, Dirty Rotten Scoundrels, Swordfish og Transporter svo fáar séu nefndar.







