Tíðindi

Skíðastökkstilboð Úrval Útsýn

  28/10/2010október 25th, 2021No Comments

Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn býður nú í einn sólarhring svokallað skíðastökk en það er sértilboð til Veróna á Ítalíu.

Þar eru vissulega ágætar skíðabrekkur í nágrenni en það tekur eina og hálfa klukkustund í lágmarki að komast í þær frá borginni. Tvær klukkustundir tekur að keyra til skíðasvæðisins Madonna di Gampiglio. Því er strangt til tekið ekki um skíðaferð að ræða frekar en borgarferð.

Fyrir flug aðra leið til Veróna fæst þó á 29.900 krónur til hádegis á morgun eða 59.800 báðar leiðir. Þó svo verðið sé lægra en gengur og gerist er seint hægt að tala um stórgott verð í þessu sambandi.

Heimasíða ÚÚ hér.