Þ ó lítill vafi leiki á að verðlag í Tælandi er enn almennt tiltölulega hagkvæmt eru ákveðnir hlutir þar í landi sem vænlegra er að kaupa en aðra.

Allt er þar falt fyrir peninga en stór hluti þess varnings sem þar er seldur og ferðamenn missa sig yfir eru oftar en ekki falsvörur. Getur það jafnvel átt við um dýrari hluti eins og farsíma og myndavélar.

Allt undir sólinni er falt í Bangkok og þar mjög víða hægt að gera kjarakaup.

Allt undir sólinni er falt í Bangkok og þar mjög víða hægt að gera kjarakaup.

Að mati ritstjórnar Fararheill.is ættu engir ferðamenn að yfirgefa Bangkok eða Tæland án þess að skoða úrvalið og jafnvel festa kaup á eftirtöldum vörum:

♥  Nuddolíur – Fyrir utan kynlífið sem er hér býsna billegt og skrautlegt er sennilega hvergi í heiminum fleiri nuddstofur af ýmsum toga. Hvergi finnst það krummaskuð í landinu þar sem ekki býðst nudd og oftast þarf ekki að leita að því. Nuddið kemur oft til þín. Alls ekki er þó um að ræða að slíkt sé alltaf tengd kynlífi. Tælendingar vita mætavel um jákvæð áhrif nudds og eiga þúsundir mismunandi tegunda olía sem eðalfínar eru á kroppa fölbleikra Íslendinga. Nuddolíur má kaupa í öllum helstu verslunum og á öllum nuddstofum og velflestum hótelum.

♥  Belti – Belti eru afar mikið inn þessa dagana í landinu. Víst eru mörg þeirra eftirlíkingar af hönnun vestrænna gúrúa á borð við D&G og Diesel en mörg eru einnig hönnuð hér og það nokkuð vel. Fyrst og fremst er það magnað úrval sem heillar því vart finnst götusali né verslun sem ekki býður hundruðir tegunda. Hjá götusölunum fæst fínt leðurbelti á 200 krónur.

♥  Töskur – Þær eru hér einnig í gríðarlegu úrvali hvort sem rölt er um markaði eða stórverslanir. Þekki maður rétta leigubílstjórann má fá nákvæmar eftirlíkingar af nýjustu Parísar veskjunum á tíu þúsund krónur í stað 300 þúsunda. Finna má mun ódýrari töskur á mörkuðum allt niður í 800 krónur fyrir „merkjavöru.“

♥  Jakkaföt – Hvarvetna má finna indverska, eða yfirleitt indverska, klæðskera sem allt vilja fyrir mann gera. Þeir bjóða sérsniðin jakkaföt úr gulli ef svo ber undir en trixið er að prútta en einnig finna þann stað þar sem margir klæðskerar eru á litlum bletti. Þannig er auðvelt að labba út og heimsækja þann næsta ef upprunalegu tilboðin reynast of góð til að vera sönn. Flestir eru þeir góðir klæðskerar og skila ágætri vöru ef fólk stenst ágengni þeirra sem er vægast sagt mikil. Þrátt fyrir tilboð sín um sniðin jakkaföt á fimmtán þúsund krónur er nær lagi að gera ráð fyrir 30 þúsundum fyrir jakkaföt úr góðu efni. Besti staðurinn til þess arna í Bangkok er við Charoen Krung götu eða á neðstu hæð MBK verslunarmiðstöðvarinnar.

♥  Krydd –  Allir matgæðingar vita að tælensk krydd eru fyrsta flokks og hér má hvarvetna finna ferskar nýpakkaðar kryddvörur á hverju strái. Markaðirnir eru bestir til þess arna en kryddverslanir finnast víða um leið og strikið er tekið út fyrir þægindasvæði ferðamanna.

Óhrædd við að nota nífaldan heimsmeistara í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards hér að neðan. Það er eina tekjuleið okkur hér 😉