
Margir vilja meina að brekkurnar í Zell Am See sé það besta sem Alpafjöll bjóða upp á.
Ófáir skíðaunnendur hafa brugðið á það ráð að skíða erlendis og er það almennt álit þeirra sem til þekkja að Zell am See í Austurríki sé fremst meðal jafningja þó reyndar svæðið þyki ekki með þeim allra bestu samkvæmt ferðamálaráði Austurríkis. Það er þó einna auðveldast að nálgast héðan enda beint flug frá Keflavík verið á vegum nokkurra ferðaskrifstofa reglulega gegnum tíðina.
Helgast vinsældirnar af 132 kílómetrum alls af eðalbrekkum fyrir byrjendur sem heimsmeistara enda lélegt leyndarmál að hingað koma landsliðsmenn Austurríkis í skíðaíþróttum reglulega að æfa sig. 55 lyftur sjá um að hvergi sé löng röð.
Ólíkt því sem gerist á ylhýra Fróni er brekkurnar flestar kjaftfullar af snjó nánast frá byrjun október og alveg fram í maí sökum þess að 75 prósent vinsælli brekkanna eru með snjógerðartæki á fullu brensi allan sólarhringinn. Þannig að ef vetur konungur klikkar þá kemur það ekki mikið að sök.
En ekki aðeins eru hér toppaðstæður fyrir bretta- og skíðafólk heldur líka 200 kílómetrar af troðnum gönguskíðabrautum. Þar er því hægt að ganga um lengi án þess að fara sömu leið sem er óendanlega skemmtilegra en útbúa sífellt sínar eigin nýju brautir eins og er raunin oftast hér á landi.
Þessa utan er enginn skortur á veitingakofum og skálum til að svala þorsta eða slaka á í góðra vina hópi í eða við allar helstu brekkur og það hafa mætir menn sannreynt að bjórinn smakkast vart betur en við arineld að kvöldlagi eftir heilan dag í brekkum á skíðum.
Að síðustu væsir heldur ekki um fólk sem engan áhuga hefur á skíðum. Margs konar önnur afþreying er í boði bæði í Zell am See og nágrannabænum Kaprun og sumt á svæðinu verður best skoðað á sumrin þegar snjóa leysir alfarið. Hellar, kastalar og stórkostleg vatnsföll eru víða í grennd við bæinn. Hér er einnig, merkilegt nokk, stórglæsilegur golfvöllur, hátt upp í fjöllum með ægifagurt útsýni yfir hinn 3200 metra háa tind Kitzsteinhorn.
Allar upplýsingar um færi, veður, tilboð og annað sem að notum getur komið þeim er áhuga hafa má finna á heimasíðu héraðsins hér. Fararheill mælir sterklega með svæðinu sem er bæði afar fallegt að sumri sem vetri og hvers kyns útivist hér er ævintýri.




