B rasilía er stór. Risastór. Nánar tiltekið átta milljón fimm hundruð og sextán ferkílómetrar. Íslandið góða er algjör dvergur í samanburði með sína 103 þúsund ferkílómetra.

Þetta er magnaðasta land heims. Punktur og basta! Skjáskot

Við gætum sagt ykkur prósentulega hversu mikið stærri Brasilía er umfram Ísland en við látum það vera í bili. Allir sem geta lagt saman tvo og tvo átta sig þokkalega á að manneskja gæti þvælst um Brasilíu um hundrað ára skeið og samt aðeins vitnað tvö til þrjú prósent landsins alls.

Hver vissi, til dæmis, að sandeyðimerkur finndust í Brasilíu? Þetta land er jú í miðju sígræns Amazon-frumskógarins og að fyrir utan að hér eru sendnar strendur um alla strandlengjuna þá er skrambi ólíklegt að hér finnist eyðimörk og hvað þá fleiri en ein.

Eða hvað?

Hinn stórkostlegi drónaferðalangur Bashir Abu Shakra hefur verið að þvælast um þetta mikla land síðustu misserin og viti menn! Hér eru sannarlega eyðimerkur líka.

Fyrir utan auðvitað eitthvað gleðiríkasta fólk undir sólinni. Fyrir utan eitthvað stórkostlegasta dýralíf undir sólinni. Fyrir utan stærsta og fallegasta skóg í veröldinni. Fyrir utan einhverjar fegurstu borgir heims. Fyrir utan einhverja stórkostlegustu knattspyrnumenn sem fyrirfinnast. Fyrir utan einhvern unaðslegasta hversdagsmat sem nokkur getur ofan í sig látið. Og svo framvegis og svo framvegis.

Eini gallinn er þessi súpervitlausi forseti landsins og grimmileg fátækt og glæpir í kjölfarið því öllu hér er misskipt eins og forstjóri Samherja hafi fengið að ráða hér ríkjum síðustu 50 árin.

Óhrædd við að nota nífaldan heimsmeistara í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards hér að neðan. Það er eina tekjuleið okkur hér 😉