Þ ökk sé samfélagsmiðlum þarf þessi dægrin nánast ekki að hreyfa legg, lið né lunga til að vita samt þokkalega upp á hár hvernig lífið gengur fyrir sig í Seoul í Kóreu, Catanía á Ítalíu eða Tijuana í Mexíkó. Hvað þá hvernig jólin eru í Moskvu Pútíns.

Í Moskvu eru líka súperfínir jólamarkaðir eins og annars staðar í Evrópu. Mynd Axel F

Það gleymist stundum þeim er búa yfir meiri ævintýragirni en því fólki sem dvelst þrjátíu ár í röð á sama hótelinu og helst í sama herbergi eins og velþekktur verslunareigandi á Íslandi hefur hlutina, að orðið er sallaauðvelt að kynna sér stað og stund á hinum ólíklegustu stöðum heims gegnum samfélagsmiðla.

Þannig á ekkert að koma á óvart að ekkert sé mikið að gerast á torgum Kölnar í Þýskalandi. Né heldur eiga verkföll jarðlestarstarfsmanna í Lundúnum að koma neinum á óvart. Og er einhver jólastemmning í Moskvu í Rússlandi?

Jebbsídeisí og halelújah.

Óhrædd við að nota nífaldan heimsmeistara í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards hér að neðan. Það er eina tekjuleið okkur hér 😉