F áir staðir jafn lifandi á veraldarvísu og Bourbon-stræti í New Orleans yfir Mardi Gras. Bókstaflega ekki gengið fyrir mannfjölda og næstum hver einasta sála ölvuð eða útúrreykt nema hvoru tveggja sé. Geðveikur hávaði og læti er gefið langt fram eftir nóttum.

Kondu í partí. Og partí út í eitt. Mynd New Orleans Tourist Office

Sem er auðvitað alveg príma ef fólk elskar að hitta rammskakkt fólk á förnum vegi. Verra ef fólk er tiltölulega allsgáð og vill kannski allt annað.

Hér eru fimm hlutir sem þú vissir ekki um einhverja stærstu og vinsælustu hátíð Bandaríkjanna:

A) Engir heimamenn finnast í Bourbon-stræti yfir Mardi Gras

Tveir úr ritstjórn Fararheill upplifað Mardi Gras í New Orleans í Louisiana í Bandaríkjunum síðustu árin. Bourbon-strætið er nafn númer eitt, tvö og þrjú þegar að þeirri hátíð kemur en sú gatan sést á meðfylgjandi mynd. Það gildir þó aðeins ef fólk gúgglar borgina yfir þá hátíðina. Hvergi kemur þar fram að heimafólk kemur næstum aldrei nálægt þeirri götunni yfir hátíðina. Þeir eru annars staðar að njóta lífsins og það undantekningarlaust mun betur.

B) Skrúðgöngur algengari en fólk í Súðavík

Eðli máls samkvæmt eru skrúðgöngur algengar yfir Mardi Gras bæði vestanhafs og austan. Samkvæmt Google er skrúðgangan í Bourbon-stræti það besta sem hefur gerst í New Orleans en það tóm steypa. Reyndin er sú að fjölmargar skrúðgöngur eiga sér stað yfir þennan tíma og fæstar þeirra fara gegnum það vinsæla stræti. Flestar eiga sér stað í öðrum hverfum borgarinnar.

C) Feitur verðmunur á mat og veigum

Matur og áfengi kostar þetta 30-60% meira í og við Bourbon-strætið en í öðrum minna þekktum götum yfir Mardi Gras hátíðina. Verðmunurinn fer vel yfir 50% miðað við fátækari hverfi borgarinnar þar sem stuðið og stemmningin er oftar en ekki 50% meiri en í hinum fræga franska hluta borgarinnar. Fólk líka heilt yfir vinsamlegra og maturinn mikið betri.

D) Löggan leiðinlegri

Lögreglumenn vestanhafs eru gjarnan leiðinlegri en ræður Guðmundar Franklíns Jónssonar og næstum innantómari líka. Með tilliti til að Bourbon-strætið er staður númer eitt, tvö, þrjú og fjögur hjá aðkomufólki er lögreglan fjölmenn á þessum slóðum og reglurnar mun harðari en annars staðar. Taktu með þér bjórinn út fyrir barinn og það umsvifalaust 800 dollara sekt ef löggan sér þig plús vesen fyrir staðinn. Bourbon-strætið eina gata borgarinnar þar sem þú mátt EKKI taka með þér áfengar veigar út fyrir hússins dyr.

E) Gisting kostar hönd og fót en ekki alls staðar

Negla þarf gistingu með mjög löngum fyrirvara langi fólk til að dvelja í grennd við franska hluta borgarinnar yfir Mardi Gras. Tólf mánaða fyrirvari eiginlega lágmark og jafnvel þá smyrja hóteleigendur 40% ofan á almennt hátt verð per herbergi. En ef þú þorir að gista í „verri” hverfum borgarinnar, hverfum, sem eru alls ekkert verri þegar allt kemur til alls, sparar þú lágmark 50% miðað við að gista í og eða við Bourbon-strætið.

Ekki hrædd við að bóka gistingu annars staðar í New Orleans en í eða við franska hverfið. Þvert á móti þá lofum við hér að þú munt njóta dvalarinnar miklu betur ef þú bókar annars staðar en þar 🙂