Þennan daginn er það ferðaskrifstofan Heimsferðir sem brýtur lögin. Líklega vitandi að þeir komast upp með það eins og alltaf.
Lögbrotið sérðu hér til hliðar. Þar auglýsir ferðaskrifstofan „Magnað paratilboð” til Tenerife en þar verður að hafa hraðann á því túrinn atarna hefst á fimmtudaginn kemur.
Burtséð frá þeirri staðreynd að 78.600 krónur á kjaft eða 157.200 krónur á parið til Tenerife í vikutíma er eins langt frá því að vera „magnað paratilboð” og að Bandaríkjamenn hafi unnið Víetnamstríðið. Ekki hvað síst þegar fyrirvarinn er næsta enginn.
En hvað gerist svo ef við ætlum að skoða þetta magnaða tilboð nánar?
Þá fáum við þessa mynd af þeim hótelkostum sem í boði eru þann 16. júní í viku:

Beðist velvirðingar á hversu smátt allt er en við þurftum að ná öllum hótelkostum á eitt blað. Öll verð miðast við einn einstakling þegar tveir ferðast saman. Skjáskot
Taka lesendur okkar eftir einhverju sérstöku við myndina hér að ofan? En ef þú berð fyrstu myndina saman við síðari myndina?
Jamms, það er ekki neitt í boði á vef Heimsferða sem stemmir við hið magnaða paratilboð upp á 78.600 krónur á mann. Lægsta verð á flugi plús gisting kostar manninn að lágmarki 95.100 krónur og parið alls 190.200 krónur. Bara 21% dýrara en gefið er í skyn.
Þetta, góðir lesendur, er brot á neytendalögum. Þar kveðið á um að óheimilt sé að auglýsa eitthvað á verði sem ekki stenst eða finnst við leit.
En hjá Heimsferðum eru lögin eitthvað ofan á brauð 🙁







