L íkast til hefur þú aldrei heyrt talað um eyjuna Lombok í Indónesíu. En þú hefur 100 prósent heyrt um eyjuna Balí í sama landi. Lombok er Balí eins og Balí var áður en fjöldatúrismi hélt þar inngöngu sína.

Strönd á vinsælum stað í Lombok.
Engum blöðum um að fletta að Balí hin indónesíska er stórkostleg með stóru essi. Djamm, djúserí og dásamlegheit plús sveitarómantík, kostulegar náttúrulegar dásemdir og dýralíf par exellans. Balí virðist hafa allt sem eðlilegt fólk sækist í á ferðalögum.
Nema kannski ef vera skyldi fjöldatúrismann sem ræður þar ríkjum. Á þekktustu stöðunum eins og í Ubud og Denpasar er hvergi þverfótað fyrir fólki og gildir einu hvort heimsótt er í janúar eða júlí. Alls staðar er fólk og það í mun meira mæli en hægt er að kalla eðlilegt. Það í ofanálag við heimafólk gerir það að verkum að hér er geðveikt umferðaröngþveiti í borgum og stærri bæjum alla daga ársins.
Allt ofangreint gott og blessað ef mannmergð, mengun og megavesen er á dagskránni. En hvað ef við segðum ykkur að næsta eyja við hina vinsælu Balí, eyjan Lombok, sé laus við allt þetta vesen en býður ekki upp á síðri náttúrufegurð, himneskar strendur og yndislegheit allan hringinn.
Margir sem sjá Balí í hillingum gleyma því gjarnan að Indónesía samanstendur af vel yfir sautján þúsund eyjum. Í því ljósi er undarlegt hversu margir halda til Balí því hinar sautján þúsund eyjurnar eru síst verri.

Balí til vinstri, Lombok til hægri. Svipaðar að stærð en fjöldatúrismi ekki búinn að finna sér stað á Lombok ennþá. Skjáskot
Það á við um nágrannaeyjuna Lombok en þangað er komist frá Balí á einni og hálfri klukkustund með báti eða með flugi á 30 til 40 mínútum eða svo. Algengt verð á flugi aðra leið þetta fimm til átta þúsund með farangur.
Á Lombok finnast vissulega vinsælir ferðamannastaðir en ólíkt Balí þar sem túrisminn er alls staðar er ferðafólk nánast eingöngu á vappi á suðvesturhorni Lombok. Þar er mikið stuð ef það er draumurinn en ef ekki býður Lombok upp á eitt og annað sem Balí státar ekki af og þar eldfjöll kannski fremst jafningja.
Lombok er þó eðli máls samkvæmt ekki ólíkt Balí nema að því leytinu að slökun er hér þúsundfalt auðveldari sökum þess að hér eru engar umferðarteppur 24/7. Hér sérðu ekki erlenda ferðamenn á hverju strái og heimafólk ennþá elskulegra en á Balí. Þetta er eiginlega Balí áður en þar varð ferðamannasprengja fyrir 20 árum síðan en býr samt yfir öllu þessu sem ferðafólk vill og vanhagar um á þvælingi.
Okkur finnst það ósköp heillandi. Hvað um þig?




