S amkvæmt opinberum tölum eru fáir erlendir ferðamenn sem notfæra sér jarðlestarkerfi Stokkhólms til að þvælast um borgina. Það er þó sannarlega þess virði og ekki aðeins til að komast á milli staða með ódýrum hætti heldur og til að upplifa eitt flottasta listasafn landsins.
Ók, listasafn kannski fulllangt seilst. Hér erum við að meina að velflestar jarðlestarstöðvar borgarinnar eru skreyttar í hólf og gólf og oft með stórgóðum myndlistarverkum beint á klettaveggina.



Með tilliti til að heimsókn á betri söfn Svíþjóðar kostar manninn yfirleitt tvö þúsund krónur plús er þetta þjóðráð til að njóta lista án þess að eyða grænum eyri í annað en fargjaldið 🙂




