Í sportbílaheimum þykir aldeilis ekki lélegt að þrykkja bíltík upp í hundrað kílómetra hraða á fimm til sex sekúndum. En fólk þarf ekki einu sinni bílpróf þessi dægrin til að upplifa hraðaaukningu frá núll og upp í 180 kílómetra á aðeins fimm sekúndum.

Slíkt geta allir upplifað sem heimsækja nýjan skemmtigarð við borgina Salou á Spáni en þar hefur skemmtigarðurinn frægi Port Aventura bætt rós í safn sitt og það í samvinnu við Ferrari.

Ferrariland heitir verkefnið og fyrsta aðdráttaraflið í þeim garði ekki af lakara taginu: hæsti og hraðasti rússíbani í Evrópu. Red Force kallast það leiktæki og er kannski ekki fyrir alla eins og meðfylgjandi myndband ber með sér enda rússíbaninn atarna litlir 112 metrar á hæðina.