S vindl og svínarí er ekki einskorðað við stjórnanda hótels Adam á Skólavörðustígnum eða Ólaf Ólafsson hjá Samskipum. Það viðgengst alls staðar og ekki hvað síst á íbúðavefnum Airbnb.

Stóraukin hlutdeild Airbnb á leiguíbúðamarkaðnum

Velflestir halda að með tilliti til velgengni íbúðaleigunnar Airbnb sé það æði öruggt að leigja íbúð eða herbergi gegnum það fyrirtæki. Það gengi jú ekki svona svakalega vel hjá fyrirtækinu ef allt væri ekki hundrað prósent öruggt.

Eða hvað?

Í ljós kemur að merkilega margir sem leigja út húsnæði eða herbergi á íbúðaleigunni vilja gjarnan fá greiðslu millifærða á sinn reikning til tryggingar. Oft um alla upphæðina að ræða eða í tilfellum helming þess sem leigjandi þarf að greiða í heildina. Aðrir greiðslumöguleikar ekki sagðir í boði hafi viðkomandi áhuga á umræddri íbúð eða húsi.

Margir falla fyrir þessu og raunin er sú að þeir sem millifæra fjármuni á erlenda reikninga, eða senda eftir öðrum leiðum, vegna leigu á íbúð sjá peninga sína undantekningarlítið aldrei aftur og þaðan af síður bíður fín íbúð eftir þeim á erlendri grund í umræddan tíma.

Hvers vegna falla margir í þessa gryfju? Jú, að stórum hluta til vegna græðgi. Vitiborið fólk veit jú að billjónafyrirtækið Airbnb væri ekki billjónafyrirtæki ef það tæki ekki feita þóknun fyrir milligöngu um íbúðaleigu. Airbnb tekur að jafnaði 15 prósent af leiguverði til sín og mest 18 prósent fyrir stærstu eignirnar.

Íbúðaeigendur vita sem er að geti þeir skáskotið sér framhjá greiðslu gegnum vef Airbnb fá þeir meira fyrir sinn snúð. Dittó fyrir leigjendur sem geta þá mögulega fengið íbúð á lægra verði en ella ef þeir hafa beint samband við eigandann hvers nafn, sími og netfang finnst á vef Airbnb.

En þar liggur steindauður hundur grafinn. Þetta vita óprúttnir og þeir ekki fáir þarna úti sem notfæra sér hlutina. Og Airbnb er ekki að fara að aðstoða þig á neinn hátt ef fína íbúðin í Berlín sem þú varst búin/n að tryggja þér í viku með millifærslu reynist alls ekki laus eða til leigu yfir höfuð þegar þú mætir af flugvellinum.

En það er ekki eini mínusinn við Airbnb. Fyrirtækið er erfitt við að eiga bjáti eitthvað á hjá leigjendum og það greiðir bætur aðeins í fulla hnefana. Segja má að hafi leigjendur einhverjar kvartanir sem ekki er hægt að mynda eða sanna á þann hátt sé öll nótt úti. Það á til dæmis við ef hræðileg lykt finnst í leigðri íbúð. Það á til dæmis við ef húseigandi stelur frá leigjendum og í fleiri tilfellum.

Trixið er því að fara jafn varlega í leigu hjá Airbnb og öðrum aðilum þarna úti. Í öllu falli ekki millifæra eða senda peninga jafnvel þó það þýði betri díl. Betri díllinn reynist nánast alltaf töluvert verri díll þegar þú reynist svo húsnæðislaus úti í löndum.

Að lokum þetta: rannsóknir hafa sýnt að íbúðaverð á Airbnb hækkar fyrr og örar en hjá hótelum og gististöðum á annatímum. Þjóðráð áður en þú neglir íbúð gegnum Airbnb að gera verðsamanburð við hótel á sama stað. Niðurstaðan gæti komið þér á óvart 🙂