Ótrúlega margir Íslendingar birta upplýsingar á fésbókinni eða öðrum samfélagsmiðlum sem eiga lítið sem ekkert erindi þangað og gera óprúttnum afar auðvelt fyrir.

Heimilið mannlaust? Best að kanna fésbókina.

Heimilið mannlaust? Best að kanna fésbókina.

Hvern einasta dag ársins má sjá færslur á samfélagsmiðlum þar sem fólk er að tjá sig um komandi ferðalag, statt á flugvellinum eða er að birta spennandi myndir frá yfirstandandi ferðalagi.

Að öllu leyti skiljanlegt að vilja deila gleði og spennu á erlendri grund með sínum nánustu eða hreint og beint monta sig af sólbrúnkunni í janúar meðan vart er komist úr húsi fyrir snjó og vindum hér heima.

En stundum gleymist að óprúttnir eru líka komnir inn í nútímann. Allra einfaldasta leiðin til að komast að því hvort íbúð eða fasteign er mannlaus er að skoða færslur fólks á samfélagsmiðlum. Auga leið gefur að ef fjölskylda er að birta strandmyndir frá Tenerife eru líkurnar æði miklar að enginn sé heimavið í Grafarvoginum. Margir eru líka með stillingar þannig að það sést á augabragði hvar fólk er statt í heiminum þá og þá stundina. Sömuleiðis eru enn allnokkrir sem ekki átta sig á að loka fyrir aðgang ókunnugra að einkasíðum sínum.

Það er því eitt besta ráð sem fólk getur farið eftir að birta alls engar upplýsingar um slíkt á slíkum miðlum fyrirfram eða á meðan ferð stendur. Sömuleiðis taka úr sambandi stillingar sem sýna staðsetningu fólks öllum stundum og það gildir sannarlega líka um snjallsíma. Allur er jú varinn góður enda barnaleikur fyrir flesta með tölvuvit í kolli að hakka sig inn í farsíma eða fartölvur þessi dægrin eins og mýmargar rannsóknir hafa sýnt.