Það telst varla ýkja spennandi að vera hlaðmaður á flugvelli og hafa þann starfa hvernig sem viðrar að henda tonnum af töskum úr vélum og í allan daginn liðlangann. Fyrir utan að horfa upp á raðir af fólki með bros á vör á leið í frí.

Sjálfsagt að þróa listræna hæfileika milli anna á flugvellinum. Mynd twitter Mentalitymag

Sjálfsagt að þróa listræna hæfileika milli anna á flugvellinum. Mynd twitter Mentalitymag

Einn slíkur starfsmaður Ryanair í Dublin notaði dauðann tíma milli véla til að láta reyna á listræna hæfileika sína í snjónum og tókst bærilega til.

Gallinn kannski að nú á dögum þegar hver og einn er með farsíma og netaðgang þarf lítið til að slík framtakssemi náist á mynd og beint á samfélagsmiðla.

Einhvers staðar hefði flugvallarstjóri eða einhver stjóri orðið æfur yfir slíku dúlleríi og starfsmaðurinn fengið reisupassa hið snarasta.

En hjá Ryanair hafa menn húmor fyrir hlutunum enda írskir upp til hópa. Í svari flugfélagsins við fyrirspurn vegna málsins lýsti flugfélagið leiða sínum yfir að viðkomandi starfsmaður hafi gleymt að setja vængi á snjóflugvélina sína.