S umum er einfaldlega ekki hægt að gera til geðs. Það á sannarlega við hluta þeirra tugmilljóna ferðamanna sem um heiminn þvælast ár hvert þegar Covid er ekki með leiðindi.
Vefmiðillinn Skyscanner gróf upp nokkur gullkorn frá kvörtunardeildum hótela, ferðaskrifstofa og flugfélaga hin síðari ár og sem fyrr er það hin skemmtilegasta lesning og sönnun þess að stöku einstaklingar ættu að sjá sóma sinn í að vera bara heima hjá sér og hananú!
* lauslega þýtt úr ensku
„Á ferðalagi mínu um Góa á Indlandi var viðbjóðslegt að komast að því að næstum allir veitingastaðir í landinu bjóða upp á karrírétti. Ég þoli ekki kryddaðan mat.„
„Eftir að hafa séð fullorðinn karlfíl njóta kerlingar sinnar í safaríleiðangri mínum verð ég að segja að sú reynsla hafði mjög neikvæð áhrif á ferðalag mitt í kjölfarið. Ég fékk minnimáttarkennd og allar rómantískar stundir fóru út í hafsauga.„
„Það er algjörlega galið að menn geti bara lokað verslunum sínum meðan á síestu stendur. Þetta hentaði mér ekki því ég vildi gjarnan versla yfir þennan tíma. Slíkt á að banna.„
„Enginn sagði mér frá því fyrirfram að fólk mætti vera berbrjósta á ströndinni. Það eyðilagði alveg sumarleyfið því eiginmaðurinn gat ekki tekið augun af stelpunum.„
„Mér er skylt að kvarta vegna þess að sérhönnuðu sólgleraugun sem við keyptum af götusala í ferðinni reyndust ekki vera ekta þegar heim var komið.„
„Hvar stóð í bæklingnum að það væru fiskar í sjónum? Börnin okkar voru dauðhrædd.“
„Þetta er óréttlátt. Það tók okkur hjónin níu klukkustundir að fljúga heim til Englands frá Jamaíka en allir Bandaríkjamennirnir sem fóru á sama tíma voru komnir heim eftir þrjár stundir.“
„Allt of mikið af spænsku fólki. Á hótelinu töluðu allir spænsku og allur maturinn var spænskur. Okkur finnst of margir útlendingar nú búa erlendis.“
„Fríið mitt reyndist ekki vera svo frábært. Kærastan mín hraut allar nætur og ég svaf illa. Er hægt að fá einhvern afslátt út á það?“
„Við þurfum að bíða heillengi í röð úti og það var engin loftkæling.“
„Það hljóta að vera reglur hjá ferðaskrifstofunni að vara fólk fyrirfram við hávaðasömum nágrönnum á sumarleyfisstað. Mér finnst lágmark að fólk viti af slíku áður en ferð er keypt.“
„Það vara bara eitt stórt hjónarúm á hótelherberginu okkar en ekki tvö aðskilin eins og við óskuðum eftir. Nú er ég ófrísk og það er ykkur að kenna.“
„Sandurinn á ströndinni var alls ekki eins og á myndunum í bæklingnum ykkar. Þar var hann gulleitur en er skjannahvítur í raunveruleikanum.“





