Næstu mánuðina geta áhugasamir keypt sér tólf nátta ferð til Tælands þar sem dvalist er annars vegar í hinni heillandi Bangkok skamman tíma áður en við tekur ljúft strandlíf á hinum guðdómlega stað Krabi. Frá Heathrow kostar ferðin aðeins 160 þúsund krónur á haus.

Krabi er einn fimm flottustu staða Tælands og ekki er leiðinlegt í Bangkok heldur. Mynd Billy Woon

Krabi er einn fimm flottustu staða Tælands og ekki er leiðinlegt í Bangkok heldur. Mynd Billy Woon

Tæland er mun vinsælli áfangastaður Íslendinga en margir gera sér grein fyrir. Ekki aðeins hefur könnun Fararheill sýnt fram á vinsældir landsins heldur og árslistar Dohop.is líka. Á þeim vef leita Íslendingar hvað mest að flugi til Tælands og er fjöldinn litlu minni en leitar að flugi til vinsælla staða í Evrópu.

Stöku ferðir til Tælands eru í boði héðan með innlendum aðilum en nett yfirlega Fararheill leiðir í ljós að enginn er að bjóða lengri ferðir undir 400 þúsund krónum á mann. Með öðrum orðum kostar ferð til Tælands meðal mánaðarlaun á Íslandi þessi dægrin að lágmarki. Með tilliti til þess að enginn þessara aðila er að bjóða beint flug vaknar alltaf spurningin hvort ekki sé vitlegra fjárhagslega séð að ferðast með stærri og öflugri ferðaskrifstofum en hér finnast.

Sumir kjósa það og aðrir ekki eins og gengur en fyrir þá sem langar til Tælands en eru ekki reiðubúnir að fórna mánaðarlaunum væri óvitlaust að skoða tilboð bresku ferðaskrifstofunnar Qwerty. Þeir bjóða tólf nátta ferð sem skiptist í Bangkok og strandlíf á Krabi fyrir rétt rúmar 160 þúsund krónur þessa stundina miðað við gengi dagsins.

Þessar ferðir eru í boði fram til október á tilteknum dagsetningum en ekki er um lúxusferð að ræða í því tilliti að ekki er um allt innifalið að ræða og aðeins morgunmatur í boði á hótelunum. Það á ekki að koma að sök. Tonn er af stórkostlegum veitingastöðum í Bangkok og matur almennt í Tælandi er fantagóður.

Fyrir vikið er ferðin ódýr miðað við Tælandsferðir en aðeins flug eitt og sér þangað fæst sjaldan undir hundrað þúsund krónum á mann þessa síðustu og verstu. Miðað við allra lægstu fargjöld héðan og út til Englands og heim yrði heildarkostnaður við ferðina kringum 200 þúsund á mann miðað við tvo saman. Það er verð sem bragð er að.

Tilboð Qwerty hér og sem fyrr er óhætt að bjalla í okkur, fararheill@fararheill.is, ef eitthvað er óljóst eða hjálp vantar.