T öluvert þarf til að gera mann kjaftstopp á þessum síðustu og verstu  þegar hægt er með músarsmelli að skoða nánast hvern kima heimsins án þess að hreyfa ligg né lið og það á örskotsstund. En ritstjórn Fararheill hefur einmitt legið kjaftstopp um tíma.

Kínamúrinn af sérstökum stað með augum AirPano

Kínamúrinn af sérstökum stað með augum AirPano

Þar er um að kenna myndaseríum rússnesks teymis sem þvælist um heiminn af hreinni ástríðu og tekur þrívíðar panorama-myndir úr lofti af mörgum velþekktum kennileitum og borgum.

Við gætum röflað okkur hás yfir hversu frábærar þessar myndir eru og hvernig þær gefa sérdeilis frábrugðin skot af heimsins þekktustu stöðum en fólk sér venjulega. En hér sannarlega tala myndirnar sínu máli og því þögnum við hið snarasta.

Mælum eindregið með að taka frá nokkra stund og skoða myndir þeirra félaga í AirPano hópnum og dásamast yfir þessum fjölbreytta og fallega heimi sem við búum í. Við köllum þetta airview enda hér notuð svipuð tækni og Google notar á götum niðri nema hér auðvitað allt úr lofti.

Njótið vel.