A llir vel sigldir menn og konur þekkja vandamálið á eigin skinni. Þessar hræðilegu moskítóflugur sem ætla fólk lifandi að éta eftir að dimma tekur í ákveðnum hlutum heims og valda bæði eymslum og klóri út í eitt. Fyrir utan að vera töluvert hættulegri en það í sumum löndum.
Moskítóflugur finnast nánast alls staðar í veröldinni í einhverjum mæli, mest þar sem hiti og raki er mikill og allra mest í fenjum og mýrum.
Þessi ófögnuður getur auðveldlega sett stórt strik í öll ferðalög og því óvitlaust að kynna sér hvernig best er að forðast þennan andskota.
♥ HÆTTU AÐ DREKKA ÁFENGI – Þó ekki sé það hafið yfir allan vafa þá hefur mörgum fundist sem moskító laðist fremur að fólki sem drekkur áfengi en hinna. Það kann að vera rétt ef marka má franska rannsókn frá árinu 2011 þar sem tveir hópar fólks dvöldu í svipuðu umhverfi í nokkra daga. Annar hópurinn snerti ekkert áfengi en hinu megin voru engin slík takmörk. Fólk úr báðum hópum var stungið en drykkjufólkið 30 prósent meira en hinir. Sumir vísindamenn vilja meina að alkohól geri blóð sætara fyrir moskító og því ívið meira spennandi kost fyrir varginn. Það ekki óyggjandi.
♥ SLEPPTU ALLRI ÁREYNSLU – Ekki auðvelt ráð að fylgja erlendis nema fólk liggi grafkyrrt á sólarströndu allan sólarhringinn. Vísindamenn hafa þó komist að því að líkt og með áfengi þá eru moskítóflugur æði sólgnar í fólk sem púlar eða reynir á sig. Ástæða þess umdeild en fleiri en færri segja að við áreynslu losni ákveðin efni frá vöðvum og líkamanum sem virka sem sjálfvirkur viti fyrir moskító. Mjólkursýra eitt dæmið en moskító finnur lykt af henni langar leiðir.
♥ SKIPTU UM BLÓÐFLOKK – Ok, það er reyndar ómögulegt enn sem komið er en hvert veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Þangað til ætti fólk í blóðflokki O að ferðast sem minnst ef það þolir ekki moskítóbit. Rannsókn frá árinu 2004 leiddi í ljós þá merkilegu staðreynd að moskítóflugur lenda 70 prósent oftar á fólki í þeim blóðflokki en öðrum og þó ástæðan liggi ekki enn ljós fyrir þá er þessi mikli munur ekki talin nein tilviljun.
♥ SKIPTU UM KYN – Ekki ómögulegt en kannski fulllangt gengið til að losna við flugnabit. Reyndin er að karlmenn eru frekar bitnir af moskító en kvenfólk og ástæðan ofur einfaldlega sú að þeir eru oftar en ekki stærri og stærri líkamar gefa frá sér meira af efnum sem moskítóflugur eru sólgnar í. Sem þýðir reyndar að það breytir engu að skipta um kyn en minnkun hins vegar….
♥ EKKI VERA BARNSHAFANDI – Fátt er meira spennandi fyrir moskítóflugur en ylvolgur mallakútur á barnshafandi konu og það hefur verið staðfest með ítarlegri rannsókn sem birt var í tímaritinu Lancet fyrir sjö árum síðan. Þær trekkja að tvöfalt fleiri flugur en konur sem ekki bera barn undir belti.





