Ú r fjarska er eyjan Ilha de Queimada Grande ekkert nema heillandi að sjá. Hæðótt og skógi vaxin og þar sem hún er aðeins í tveggja stunda siglingu frá São Paulo í Brasilíu ætti hún að vera kjörinn áfangastaður til að eyða rómantískri stund.

Hver hefði trúað að þessi fallega litla eyja sé hreint helvíti á jörð?

Hver hefði trúað að þessi fallega litla eyja sé hreint helvíti á jörð?

Það er að  segja ef hennar væri ekki vandlega gætt og það af sjálfum sjóher Brasilíu.

Það eru samt engin leyndarmál á eynni sem ríkið vill ekki að almenningur komist að sem orsakar að sjóherinn gætir þessarar litlu eyju tuttugu og fjóra sjö 365. Öllu frekar sú staðreynd að þeir sem hér stíga á land eiga sumir hverjir ekki endilega afturkvæmt.

Eyjan atarna er kölluð snákaeyja af gárungum og það með réttu því eina dýralífið á eynni samanstendur af fjögur þúsund baneitraðum höggormum.

Golden Lancehead heitir tegundin og er í bráðri útrýmingarhættu en hér hafa snákarnir fengið að vera í friði gegnum tíðina og fjölgað sér ört enda eyjan stopp hjá fjölmörgum farfuglum sem fljúga frá Suðurskautinu og norðureftir og öfugt á ári hverju. Sem sagt nóg að bíta og brenna jafnvel líka ef höggormar hefðu fundið upp eldinn.

Tegundin sem um ræðir er baneitruð en í mikilli útrýmingarhættu

Tegundin sem um ræðir er baneitruð en í mikilli útrýmingarhættu

Höggormabit eru alltaf hættuleg og stundum banvæn en eitur þeirrar tegundar sem dvelur á Queimada Grande er svo banvænt að húð þeirra sem fyrir biti byrjar beinlínis að bráðna umsvifalaust kringum sárið.

Gnótt er af sögum af hryllilegum örlögum fólks sem lent hefur á eynni fyrir tilviljun og ekki áttað sig á hvaða félagsskapur er hér við hvert skref og í hverju tré.

En reyndar þarf ekki alla leið hingað til að geta lent illa í því í Brasilíu. Lengri túrar inn í Amazon frumskóginn verða vinsælli með hverju ári og búið að byggja töluvert af heillandi hótelum langt inni í skógi. Þar hins vegar langt í lækni en stutt í alls kyns dýr hvers bit getur dregið fólk til dauða áður en maður getur sagt heibabbíúlla.