Sennilega er þetta draumur flestra súkkulaðiunnenda og í það minnsta Karíusar og Baktusar en raunverulegur súkkulaðiskemmtigarður hefur opnað í Shanghai í Kína og þar metast færustu súkkulaðimeistarar landsins um mestu og bestu verkin.
Því miður er sá ágæti skemmtigarður ekki opinn til framtíðar heldur aðeins í einn mánuð árlega enda mega gestir og gangandi bragða á herlegheitunum að sýningu lokinni hvert sinn og hætt er við að lítið verði eftir þegar fram líða stundir því græðgi ræður ríkjum í Kína ekki síður en á Vesturlöndum.
Skemmtigarðurinn er hluti af mikilli súkkulaðisamkeppni sem orðin er árleg í borginni en eftir að dómnefnd hefur farið yfir listaverkin hvert fyrir sig er opnað fyrir almenning sem annaðhvort getur dáðst að eða lagst í súkkulaðiát. Og verkin eru, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi, ekki af verri endanum.
Þar gefur að líta meðal annars Eiffel turninn úr súkkulaði, konunga og drottningar úr frægum ævintýrum úr 100 prósent súkkulaði og ekki má gleyma fatnaði úr súkkulaði.
Kannski helsti gallinn hversu erfitt það getur verið að draga börnin brott eftir að hafa rölt um slíkan sykurheim.








