Þ eim fjölgar sem hug hafa á að fljóta um í lystisemdum á lúxusfleyjum um heimsins höf og ekki hvað síst þegar veturinn er hvað dimmastur heima á Fróni.

Ólíkt kaldara er við Miðjarðarhafið en það karabíska í janúar en alls ekki of kalt til að ekki sé hægt að njóta.

Ólíkt kaldara er við Miðjarðarhafið en það karabíska í janúar en alls ekki of kalt til að ekki sé hægt að njóta.

Oftar en ekki er þá litið til ferða um karabíska hafið enda ógrynni skipa sem þvælast þar um í hita og sól allan ársins hring.

En hvað með Miðjarðarhafssiglingar yfir vetrartímann í Evrópu? Er of kalt til að hægt sé að njóta slíkrar ferðar í þaula? Hryssingslegt að standa í stefninu með líkjör og dilla sér við tónlistina?

Þó aldrei sé gott að alhæfa um nokkurn hlut þá verður svarið að vera já yfir allra myrkustu mánuðina en að sama skapi fer hitastigið þar suðurfrá fljótt upp á ný og mun fyrr en hér heima.

Ef við tökum vinsæla siglingu frá Barcelóna áleiðis til Ítalíu, Grikklands, Tyrklands, Túnis og aftur til Barcelóna þá er enginn vafi á að fólk heldur sig innandyra um borð í desember og janúar. Meðalhitastig í þeirri ágætu borg Barcelóna í janúar er þó þrettán stig svo ekki er um það að ræða að þurfa að taka með sér þykka úlpuna eða pakka loðfeldinum með.

Aðeins hlýrra er að jafnaði við grísku eyjarnar og mælist meðalhiti þar í janúarmánuði hæst 15 stig. Aðeins austar við Miðjarðarhafsstrendur Tyrklands nær hitastigið allra hæst 19 stigum í janúar en getur eins hrapað niður í sex stig. Aðeins hlýrra er svo í Egyptalandi, Túnis eða Alsír.

Því fer fjarri að þetta sé ýkja kalt per se miðað við íslenskan veruleika á sama tíma en auðvitað keppir Miðjarðarhafið ekki við hið karabíska á þessum tíma…. eða hvað?

Meðalhiti í Mexíkóflóanum í janúar er um 22 stig og það er ekki svo langt frá nítján stigunum við strendur Tyrklands. En meira kemur til því þótt lofthitastig geti verið indælt og jafnvel fínt í Evrópunni í janúar sýnir sólin sig mun skemur en aðra mánuði og rigningar algengar á þessum tíma. Vestanhafs í Mexíkóflóa er það hins vegar fréttaefni ef vatnsdropi sést á himni þann tíma.

Heilt yfir má segja að ástfangið par er ekki að fara að knúsast lengi í stefni skemmtiferðaskips í Miðjarðarhafinu í janúar eða febrúar. En heldur er ekki beint þörf á að klæðast kuldafatnaði. Stuttbuxurnar sleppa ekki en slík ferð er það mikið ódýrari en sambærilegar siglingar um karabíska að það sleppur mætavel að sigla í janúar.

Svo má líka segja að slík sigling í janúar sé ef til vill vænlegri fyrir ástfangið par eða hjón sem vilja skara í gamlar glóðir en sambærileg ferð í sól og sumaryl. Því þannig eyðir fólk meiri tíma inn á herbergi og saman í nánd sem er alltaf plús þegar ástfangnir aðilar eiga í hlut.