Töluvert fleiri telja að nýleg kaup Wow Air á keppinaut sínum Iceland Express séu af hinu verra en góða þó reyndar mestur fjöldi fólks vilji bíða og sjá hverju fram vindur áður en það dregur dóm sinn.
Þetta er niðurstaða nýjustu skoðanakönnunar Fararheill.is meðal lesenda sinna en þar var spurt hvort kaupin hafi verið af hinu góða fyrir neytendur.
Af þeim 482 sem þátt tóku alls eru 40 prósent, 194, á þeirri skoðun að þau kaup séu af hinu verra meðan aðeins 13 prósent, 63, telja þau til hins betra. Stærsti hluti þátttakenda, 47 prósent, vildi bíða með að draga ályktanir enda myndi aðeins tíminn leiða slíkt í ljós.
Ritstjórn Fararheill þakkar góða þátttöku og bendir á nýja könnun á vef sínum. Niðurstöðurnar eru alls ekki vísindalegar á neinn hátt og ber að taka með fyrirvara en þær gefa ákveðnar vísbendingar um hug fólks. En auðvitað mun tíminn einn leiða í ljós hvort Wow Air mun hækka fargjöld sín nú þegar fækkað hefur í hópi helstu samkeppnisaðila ef að Samkeppnisyfirvöld samþykkja kaupin en það hafa þau enn ekki gert.







