Innan skamms mun fólki gefast kostur á að smakka hinar ýmsu tegundir áfengra drykkja sem seldir eru í Fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Jack Daniels er vinamargur hérlendis sem erlendis. Eftirleiðis í Fríhöfninni gefst fólki kostur á að bragða hinar ýmsu tegundir áfengis áður en keypt er. Mynd af vef Fríhafnarinnar.
Er verið að breyta brottfararverslunum Fríhafnarinnar í Leifsstöð og opnar nú í næsta mánuði sérverslun fyrir karlmenn sem hlotið hefur nafnið Mens World.
Þar innan um fatnað og snyrtivörur fyrir þann flokk mannkyns stendur til að gefa smakk af hinum ýmsu tegundum áfengis.
Er þetta sennilegast í fyrsta skipti hérlendis sem slíkt smakk er í boði fyrir almenning en slíkar kynningar eru algengar erlendis.
Jákvætt fyrir þá sem vilja prófa nýja drykki án þess að spreða í heila flösku upp á von og óvon.






