Sé peningur eftir í veskinu og þreyta í sál er þetta aldeilis dagurinn til að breyta því. Tilboð eru hjá öllum þremur flugfélögum þeim sem hér starfa.
Icelandair býður nú hraðtilboð til Osló, Stokkhólms og Kaupmannahafnar en til hádegis þann 7. september fæst ferð aðra leiðina til þessara staða á 14.900 krónur með sköttum og gjöldum. Allar ferðir verður að fara milli 4. október og 13. desember.
Iceland Express býður til miðnættis í kvöld eina fimm áfangastaði sína á tilboðsverði. Þeir eru Barcelóna, París, Berlín, Varsjá og Alicante og prísinn til þeirra allra aðra leiðina 14.950 krónur.
Wow Air býður aðra leiðina til Berlínar og Parísar á 12.900 krónur og eru þau tilboð sömuleiðis í boði til miðnættis í kvöld. Báðar leiðir í boði til 15. október.







