Tíðindi

Þunnur þrettándi hjá Heimsferðum

  01/09/2012No Comments

Glæsilegar ferðir til spennandi áfangastaða í haust og vetur er fyrirsögnin á ferðabæklingi Heimsferða fyrir þennan veturinn. Heldur er lítið gert úr hvað fólki finnst spennandi því ef frá er talin ein einasta sérferð er allt þar eftir gamalli bók og lítt til þess fallið að auka hjartslátt ferðafólks.

Kannski er það sama gamla það sem fólk vill og þá fær það nákvæmlega það hjá Heimsferðum þennan veturinn

Hafa reyndar bæklingar flestra stærri ferðaskrifstofanna íslensku undanfarin ár verið ótrúlega litlausir þrátt fyrir litprentun. Þar er mikið um sömu staðina ár eftir ár og þessi vetur virðist lítil undantekning.

Hæst ber hjá Heimsferðum 2012 til 2013 að þessu sinni Kanarí, Tenerife, Benídorm, Costa del Sol og reyndar fjórar ferðir til Bodrum í Tyrklandi. Gott og gilt sem ljúfir áfangastaðir en fjarri því spennandi í nokkrum skilningi þess orðs.

Tvær sérferðir verða farnar af hálfu Heimsferða. Annars vegar ein ferð til hinnar fallegu Madeira þar sem reyndar miklir skógareldar hafa eyðilagt mikinn gróður undanfarið. Sú ferð er í boði 22. október. Þegar svo vorið nálgast býðst fólki, eins og síðasta vetur, Kúbuferð þann 24. apríl og er þar einnig um eina einustu ferð að ræða.

Að öðru leyti eru í boði hefðbundnar golfferðir auk skemmri borgarferða til Barcelóna, Búdapest, Prag, Rómar, Sevilla, Bratislava, Vínarborgar og Ljublana auk aðventuferðar til Heidelberg. Þá eru í boði skíðaferðir til Zell am See, Lungau og Flachau í Austurríki og að lokum tvær siglingar um Miðjarðarhaf og Karíbahaf.

Til samanburðar má glugga í haust- og vetrarbækling Heimsferða 2011 til 2012. Þar voru í boði eftirtaldar ferðir: Kanarí, Kúba, Tenerife, Costa del Sol, Bodrum í Tyrkalandi, aðventuferð til Heidelberg, borgarferðir til Sevilla, Rómar, Barcelóna, Búdapest, Ljublana og Prag. Ekki má gleyma sömu golfferðunum og auðvitað eru siglingar líka en þær voru allavega þrjár í boði í fyrravetur. Og jú, skíðaferðir til Flachau og Lungau.

Það er sem sagt ekkert nýtt að frétta hjá Heimsferðum þennan veturinn. Heimasíða Heimsferða hér.