Þ rátt fyrir að milljónir ferðamanna heimsæki hina yndislegu eyju Jamaíka árlega er aðeins brotabrot af þeim fjölda sem þorir að taka skrefið til höfuðborgarinnar Kingston. Skiljanlega að vissu leyti enda glæpir þar tíðari en ríkisaðstoð við Icelandair. Það er þó aðeins þar sem hægt er að heimsækja heimili reggíkóngsins Bob Marley.
Heimili söngvarans mikla að Vonarvegi, Hope Road, var sá staður er honum leið hvað best bæði áður og eftir að hann náði heimsfrægð þó hann létist í raun í þann mund sem heimurinn var að byrja að veita tónlist hans fyrst athygli.
Heimili hans hýsir nú safn honum til heiðurs auk kaffihúss og er í raun hið eina sem trekkir þá sem þora til Kingston borgar. Reyndin enda sú að þar er ekkert frámunalega mikið að sjá og skoða sem er líklegt til að heilla fölbleika ferðamenn frá Fróni. Ekki hvað síst sökum þess að annað hvert hverfi í borginni er leikvöllur byssuóðra ofbeldismanna.
Safnið sjálft er vitaskuld ómissandi fyrir eldheita aðdáendur karlsins en fyrir aðra er það heldur þurrkuntulegt og ekki ýkja mikið að sjá og heldur er enga tilfinningu að finna fyrir goðinu sjálfu.
Í boði eru sérstakar skoðunarferðir hingað frá flestum vinsælustu ferðamannastöðum Jamaíka en túrinn tekur tíma. Frá Montego Bay tekur rúntur til Kingston vart minna en fimm klukkustundir, þrjár frá Ocho Ríos og tæpar sex frá Negril. Slíkar skipulagðar ferðir eru í smárútum sem taka tíu til fimmtán farþega og kosta vart minna en tíu þúsund krónur.
Ritstjórn hvetur áhugasama til að sleppa skipulagðri ferð, finna traustvekjandi leigubílstjóra sem nóg er af alls staðar og gera honum tilboð í rúnt til Kingston. Þannig fæst ferð á fjögur til sex þúsund krónur og bílstjórinn fullur af fróðleik öðrum en þeim sem ferðamenn heyra frá hefðbundnum fararstjórum. Svo getur vel verið að hann lumi á smá ganja ef vilji er til 😉
Bob Marley safnið er staðsett við Hope Road og kostar klukkustundar skoðunarferð um 2.500 krónur. Safnið er opið frá 11 til 16 alla daga nema sunnudaga. Svo má lesa aðeins meira um Kingston hér.
Óhrædd við að nota nífaldan heimsmeistara í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards hér að neðan. Það er eina tekjuleið okkur hér 😉





